Samtíðin - 01.06.1964, Side 14

Samtíðin - 01.06.1964, Side 14
10 SAMTÍÐIN dyfti hún eitri i augnkrókana á sér, svo að óeðlileg tár komu fram í augun. Svo dróst hún áfram með rvkkjóttu göngu- lagi, hnykkti höfðinu til eins og fugl og skjögraði inn til Keefmans. Tólf menn gutu til hennar augunum, er hún ráfaði inn, vógu hana og mátu. Hún dragnaðist að veitingaborðinu og tyllti sér upp á stól. „Einn viskí,“ hvíslaði hún hásri röddu. En hún bragðaði ekki á því. Svo kveikti hún sér í sígarettu, en drap von bráðar í henni, þerraði augun og snýtti sér, eins og og hún þyldi ekki reykinn. Hún svip- aðist um eftir Willie, þessum þrekvaxna uxa, sem var rjóður og kringluleitur með græn augu og hrokkið hár og skyrtuna opna í hálsmálið. Sá var nú ekki árenni- legur, þar sem hann sat aleinn, þar sem skugga bar á, og horfði á liana sljóum augum. Teresa dragnaðist niður af barstóln- um og reikaði með herkjubrögðuin til hans. „Heyrðu,“ sagði hún, „mig langar i baunir í kvöld.“ Röddin var hás og hvísl- andi. „Get ég fengið baunir keyptar hér?“ Þetta þýddi á máli eiturlyfjaneytend- anna: Mig vantar heróínhylki. Þegar launsalinn heyrði það, varð augnaráð hans flóttalegt. „Ég hef aldrei séð þig hér áður,“ anzaði hann kuldalega. „Af hverju leitarðu til mín?“ Hann virti hana fyrir sér eins og út- smoginn kunnátturefur, þar sem hún húkti á stólnum andspænis honum. Jú, þvi var ekki að neita, að einkennin voru ákjósanleg: augun rök, áberandi dökk- ar svitarákir á handleggjunum, þessi órói og kláði i holdinu, eins og hún sæti á köldum marmara. — En þess voru dæmi, að lögreglufólk hafði villt þannig á sér heimildir. „Fyrir alla muni hjálpaðu mér,“ grát- bað hún. „Ég er alveg að farast. Mér er sama, hvað það kostar.“ Hann ákvað að verða við beiðni hennar. „Bíllinn minn er hérna fyrir utan,“ sagði hann. „ Grái Plymouthinn með rauðu sætunum. — Þú átt brauð?“ Hún kinkaði kolli og sýndi honum samanvafða dollaraseðlana í lófa sér. „Farðu þá og seztu inn í bílinn, og bíddu mín þar. En ef þú svíkur mig, telpa min, þá er úti um þig. Það skaltu gera þér ljóst!“ FIMM MÍNÚTUM seinna ók hann með hana austur að Harlem-ánni. Hann ók hratt, en þó með gát, þræddi eintómar hjágötur og hafði sifelldar gætur á því í speglinum, hvað væri að gerast fyrir aft- an bílinn. Teresa vonaði, að maður sinn væri einhvers staðar í humátt á eftir þeim, en þorði ekki að gefa honuni minnstu gætur. Willie ók bílnum inn í myrkrið og kyrrðina í garðinum við Harlem-ána, stöðvaði hann undir stóru tré og slökkti Ijósin á honum. Drykklanga stund sat liann grafkyrr og steinþagði. Konan heyrði tifið i klukkunni í mælaborðinu. Þau voru eins og hamarshögg í kyrrð- inni. Engin billjós voru sýnileg fyrir aft- an þau. „Allt í lagi,“ sagði hann loks upp úi' þurru. „Hvað mikið viltu kaupa?“ Tei-esa gat varla orði upp komið fyrir þurrki í munninum. „Fjóra skannnta, sagði hún. ,JÉg á 20 dollara.“ Hann dokaði enn við góða stund og horfði á liana. Síðan dró hann pakka a stærð við eldspýtustokk út úr leynivasa á jakkanum sínum. „Það er ekki víst ég selji þér þetta, sagði liann. „Hver veit, nema ég se heimskur og saklaus borgari. Hver veit, nema ég hafi fundið þennan litla pakka

x

Samtíðin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.