Samtíðin - 01.06.1964, Page 16
12
SAMTÍÐIN
„Söngurinn er líf mitt og yndi, og ég
mun syngja, meðan kraftar leyfa," segir
fTÖLSKU söngkonurnar Amelita
Gallicursi og María Callas liafa viður-
kennt, að Joan Sutherland sé jafnolci
þeirra, og það er nú allt nokkuð! Sú fvrri
leit til liðinnar frægðar af sjónarhóli
konu, sem komin var á áttræðisaldur, hin
er af ýmsum talin mesta núlifandi söng-
kona.
Sífelld veikindabarátta
ÝMSIR kunna að spyrja: Ilver er Joan
Sutherland? Hún er fædd og upp alin í
Ástralíu, og er því önnur söngkonan frá
þeirri heimsálfu, sem hefur getið sér al-
þjóðafrægð; hin var Nellie Melba (d.
1931). Báðar eiga þær sanimerkt i því,
að þær hafa náð að kalla má yfirnáttúr-
legum hljómi úr hæstu tónum, sem í
mesta lagi er ætlazt til, að sópranrödd
fái skilað hreinum og lýtalausum. Það er
of mikið sagt, að ríki Joans Sutherlands
í tónstiganum hefjist þar, sem aðrar
söngkonur gefast upp. En eins og sakir
standa, hefur hún komizt hæst þeirra
allra.
Námsferill heimsfrægs listafólks er
venjulega markaður þrotlausu erfiði, oft
baráttu við fátækt og misskilning og
stundum röð af ósigrum á hinni löngu
og torsóttu leið upp til stjarnanna. En
Joan hefur háð annars konar baráttu.
Allt ævistarf hennar hefur verið stríð
við kvalafullan sjúkdóm auk óþæginda
af fleiri kvillum.
Joan Sutherland
Veikindi eru aldrei skemmtilegt uni-
ræðuefni, nema helzt ef um eigin sjúk-
dóm er að ræða! Ilér verður þvi aðeins
stiklað á stóru í frásögninni um þetta
stríð söngkonunnar.
Joan hefur þjáðst af sjúkdómi í baki-
Hún verður að nota sérstakt stál-líf'
stykki, en linar auk þess þrautirnar með
nuddi og lieitum böðum. Oft hefur hún
ekki getað afborið þær. En liún hefur
liarkað af sér, því að eklcert má slcyggJ3
á söngstarf hennar. Þess eru dæmi, a<5
hún hefur sungið að kvöldi eftir læknis-
aðgerð að morgni sama dags!
Ástraliumenn vissu snemma, hvað 1
Jienni bjó. Þeir sendu hana að heiman
með liáan námsstyrk „til að leggja undn’
sig Evrópu.“ 35 ára gömul var liún orð-
in aðalstjarnan í Covent Garden í Lond-