Samtíðin - 01.03.1957, Síða 35

Samtíðin - 01.03.1957, Síða 35
SAMTÍÐIN 31 Þ E I R VITRL SÖGÐU: EGGERT JÓNSSON: „HöfuSkrafa iðnaðarins í dag hlýtur að vera sú, að ráðamenn þjóðarinnar viðurkenni í verki, að iðnaðurinn sé einn af aðal- atvinnuvegum þjóðarinnar og það sé því full nauðsyn fyrir þjóðarbúið að styðja hann og vernda til jafns við hina atvinnuvegina. Sú þjóð, sem ekki er iðnaðarþjóð í dag, hefur ekki tök á að skapa sér þau lífskjör, sem þarf til þess að lifa menningarlífi, nema land hennar búi yfir mjög miklum náttúruauðæfum, sem land vort gerir ekki. Vér Islendingar erum orðnir iðnaðarþjóð, og það ber að meta og viðurkenna í verki með því að skapa iðnaðinum sambærilega að- stöðu við landbúnað og sjávarútveg." V. HUGO: „Ekki skortir menn orkuna, heldur viljann“. JAMES A. FARLEY: „í þessu landi er tvenns konar fólk. Sumt af því heldur, að ríkisstjórnin geti stutt alla þegnana, en aðrir ætlast til, að allir þegnarnir styðji ríkisstjórn- ina.“ FINLEY P. DUNNE: „Það væri al- veg ólíft í þessum heimi, ef maður ætti enga óvini.“ ISAAC d’ ISRAELI: „Gallar mik- ilmennanna eru huggun heimskingj- anna“. SENECA: „Sá óttast meira en hann þarf, sem óttast, áður en hann þarf þess“. DRYDEN: „Gættu þín, ef stilling- armaðurinn missir stjórn á sér“. NVJAR BÆKUR Jón Sveinsson (Nonni): Hvernig Nonni varð hamingjusamur. Ritsafn VII. bindi. Teikningar eftir Halldór Pétursson. Freysteinn Gunnarsson þýddi. 129 bls., ib. kr. 40.00. Hugrún: Hafdís og Heiðar. II. bindi. Unglingabók. Hafdís finnur hamingj- una. 127 bls., ib. kr. 40.00. Walt Disney: Örkin hans Nóa. Barnabók með myndum eftir höfundinn. Guðjón Guðjónsson þýddi. 104 bls., ib. kr. 32.00. Gotfried August Börger: Svaðilfarir á sjó og landi. Herferðir og kátleg ævintýri Miinchhausens baróns. Myndir eftir Gustave Doré. Ingvar Brynjólfsson þýddi. 184 bls., ib. kr. 60.00. Gísla saga Súrssonar: Guðni Jónsson og Tómas Guðmundsson bjuggu í hendur íslenzkri æsku. Teikningar eftir Kjart- an Guðjónsson. 100 bls., ib. kr. 58.00. Óskar Aðalsteinsson: Vormenn Islands. Unglingasaga. 228 bls., ib; kr. 46.00. Guðlaugur Guðmundsson: Vinir dýranna. Unglingabók. Myndir eftir Halldór Pét- ursson. 125 bls., ib. kr. 45.00 Ármann Kr. Einarsson: Undraflugvélin. Saga handa börnum og unglingum. Teikningar eftir Halldór Pétursson. 179 bls., ib. kr. 45.00. Ragnheiður Jónsdóttir: Vala og Dóra. Saga fyrir börn og unglinga. 165 bls., ib. kr. 38.00. Valdimar V. Snævarr: Tómstundir. Sögur, leikrit og ljóð. 128 bls., ib. kr. 38.00. Guðrún Auðunsdóttir: 1 föðurgarði fyrr- um. Þulur. Myndir eftir Halldór Péturs- son. 33 bls., ób. kr. 35.00. Útvegum allar fáanlegar bækur. Kaup- ið bækurnar þar, sem urvalið er mest. — Sendum gegn póstkröfu um land allt. — BÓKAVERZLUN ISAFOLDARPRENTSMIÐJU H.F. Austurstræti 8, Reykjavík. Sími 4527.

x

Samtíðin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Samtíðin
https://timarit.is/publication/647

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.