Samtíðin - 01.06.1950, Page 35
SAMTÍÐIN
31
ÞEIR VITRIJ
----5ÖGÐU:
SIDNEY SMITH: „Fáið sérhverj-
um manni starf að vinna. Sjáið til
þess, að hann fái það háleitasta og
göfugasta viðfangsefni, sem hann
ræður við, og deyi í þeirri vissu, að
hann hafi gert sitt ýtrasta til að leysa
það vel af hendi.“
VERGIL: „Menn geta leyst störf
sín af hendi, af því að þeir trúa því,
að þeir geti það.“
CICERO: „Enda þótt vinir séu
f jarri hvor öðrum, eru þeir þó nærri
hvor öðrum.“
LA ROCHEFOUCAULD: „Fjar-
lægðin eyðii- litlum ástriðum og eyk-
ur miklar ástríður, eins og vindurinn
slekkiu- kertaljósið og magnar bálið.“
W. S. LANDOR „Fjarlægðin er
hin ósýnilega og ólíkamlega móðir
hinnar dásamlegustu fegurðar.“
SHAKESPEARE: „Allir dagar eru
mér sem nætur, þar til ég sé þig, og
næturnar verða mér að björtum dög-
um, þegar ég sé þig í draumum
mínum.“
ITALSKT MÁLTÆKI: „Fjarlægð-
in er óvinur ástarinnar.“
LORD CHESTERFIELD: „Sá
maður, sem venjulega er sagður við-
utan, er allajafnan annað hvort
wjög heilsuveill eða ákaflega ást-
fanginn. En hvort sem að honum
gengur, er ég viss um, að hann er
hundleiðinlegur.“
OSCAR WILDE: „Meðan konu
tekst að líta út tíu árum yngri en
dóttir hennar, er hún fyllilega ánægð
weð tilveruna*.
NYJAR BÆKUR
Jón Sigurðsson: Um daginn og veginn.
Sex útvarpserindi. G1 bls. kr. 10.00.
íslenzk ástaljóð. Nýtt safn. Snorri Hjartar-
son valdi kvæðin. 229 bls., ib. kr. 40.00.
Örn Arnarson: Illgresi 3. útg. 240 bls., ib.
kr. 60.00.
Romain Rolland: Jóhann Kristófer IV.
bindi. Uppreisnin. Skáldsaga. Þórarinn
Björnsson íslenzkaði. 310 bls., íb. kr.
50.00 og 65.00.
Graham Greene: Ástin sigraði. Skáldsaga.
240 bls., ib. kr. 45.00.
N. P. Madsen: Orðið. Litla hugvekjubókin.
Gunnar Sigurjónsson islenzkaði. 338 bls.,
íb. kr. 48.00 og 65.00.
Halldór Kiljan Laxness: Reisubókarkorn.
Ritgerðir og greinar um ýmis efni. 334
bls., ób. kr. 60.00, ib. 90.00.
Loftur Guðmundsson: Siðasti bærinn í
dalnum. Saga eftir samnefndri kvik-
mynd. Með myndum. 188 bls., íb. kr.
25.00.
Ludvig Holberg: Jóhannes von Háksen.
Leikrit i 5 þáttum. Rasmus Rask ísl.
Jón Helgason lauk þýðingunni og bjó
til prentunar. 109 bls., ób. kr. 90.00.
Jón Sveinsson (Nonni): Sólskinsdagar.
Ritsafn III. bindi. Freysteinn Gunnars-
son islenzkaði. Fritz Bergen og Hall-
dór Pétursson teiknuðu myndirnar. 220
bls., íb. kr. 35.00.
Sigurður Guðmundsson: Ágrip af fornís-
lenzkri bókmenntasögu. 3. útg. 163 bls.
íb. kr. 20.00.
Sigurður Magnússon: Ljóð. 101 bls., ób.
kr. 18.00, ib. 25.00.
Afmælisrit til Þorsteins Þorsteinssonar á
sjötugsafmæli hans 5. april 1950. 226
bls., ób. kr. 50.00, ib. 65.00.
Útvegum allar fáanlegar íslenzkar og
erlendar bækur. Sendtun gegn póstkröfu
um land allt.
HELGAFELL
Aðalstræti 18, Reykjavík.
Sími 1653. Pósthólf 156.