Börnin - 01.12.1905, Blaðsíða 10

Börnin - 01.12.1905, Blaðsíða 10
10 vinna fyrir fööur 'sinn. Það var stóra ánægjan hans í lífinu, a!J liann vissi alt af, að hann var að vinna fyrir föður sinn. Þið þurfið líka að vita það, að jnð eruð að vinna fyrir fööur ykkar á himnum, mikla, góða föðurinn ykkar. Þá þykir ykkur vænt um það. Ykkur þykir þá ekki eins vænt um neitt eins og það, að' vinna fyrir hann. Hverju viljið þiið nú svara, börnin mín? — „Viö viljum vinna fyrir hann“, heyri eg ykkur segja. Já, við viljum öll vinna fyrir hann! En getum við það ? Erum viö ekki of lítil til þess ? Eigum við ekki að bíða með það, þangað til við erum orðin stór?“ Nei, nei, þið megið ekki bíða, þangað til þiö eruö ofðim stór. Þið eigið að byrja strax. Og þið eruð ekki of lítil. Ekk- ert ykkar er of lítið til þess að vinna fyrir föður ykkar á himn- um. Og svo vill Jesús kýenna ykkur það og hjálpa ykkur til þess að vinna fyrir hann, og láta ykkur þykja vænt um það. Gáið aö því elskut-börn, Jesús vill vpra með ykkur og hjálpa. ykkur. Þykir ykkur ekki vænt urn það? ., En nú veit eg, að þið spyrjið mig: „Hvað getum við gert fyrir guð?“ — Þið getiö gert mikið fyrir gúð. Hcima hjá ykkur getið þið unnið fyrir guð. Hvernig? -— Þegar þið eruð hlýðin pabba ykkar og mömmu, þá vhmið þið' fyrir guö. Þegar þið hafið verið vond og biöjiö þau fyrirgefn- ingar og kyssið þau og segið, að þið viíjið vera góð:, þá vinnið; þið fyrir guð. Og þegar þið hjálpið þeim, sópið gólfið fyrir mömmu, þvoið upp, sækið va»n, berið inn spýtur og gerið annað.. sem þarf að gera og þiö getið gert, þá vinnið þið fyrir guð. Og þið vinnið líka fyrir guð, þegar þið læri’ö alt gott, sem pabbi og mamma vilja kenna ykkur og láta ykkur læra. Og þegar þið lesið guðs orð og biðjið. Og þegar þiö forði'st alt ljótt, allar Ijótar hugsanir og ljót orð og Ijót verk, reiðist ekki hvert við' annað og berjist ekki, en eruð góð hvert við annað og leikið ykkur fallega saman. En, góðu börnin mín, þá vinnið þið mest fyrir föðurinn á himnum, þegar þið trúið á Jesúm Krist, einka- soninn hans, sem hann gaf okkur, og þegar þið elskið hann og fylgið honum og lofiö honum að gera ykkur að góðum börnum. Því þá langar ykkur til þess að vera eins og guð vill, vera ást-

x

Börnin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Börnin
https://timarit.is/publication/650

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.