Börnin - 01.12.1905, Blaðsíða 16
i6
Til sunnudagsskólaliennara.
Eins og þegar hefir auglýst veriö, kemur ekki blaðiö
„Kennarinn“ framar sem lexíu-blað fyrir sunnudagsskólana.
Verða þá forstöðumenn skólanna að velja sjálfir lexíur, enda
munu þeir hafa gert það all-víða hingað til, þrátt fyrir lexíu-
val „Kennar,ans“. En þeim til stuðnings, sem kynnu að æskja
leiðbeininga í þessa átt, leyfi eg mér að benda á þetta: i.
„Ljósgeislar“ brúkist áfram bæði fyrir nýja sfná-barna bekki
og eins upp aftur fyrir að minsta kosti lægstu bekki barna
þeirra, sem haft hafa þá fietta síöasta ár. ICennurum gefst ]oá
enn þá betra tækifæri til þess að kenna meira af sögunum sjálf-
um, sem spjöldin eru að eins litið brot úr, og eins láta börnin
hafa meiri not af biblíusögu-spurningum þeim,sem eru á hverju
spjald'i. Tala við börnin ujn þær, . Þau læra þær þá mun
betur. Kennari, sem skilur köllun sína og er með alúö við
verkið sitt, getur aö minsta kosti í tvö ár notað spjöldin, fyrir
sömu börnin. — Skal þtess getið, að ekki ©r ólíklegt að nýir
„Ljósgeislar“ komi út að ári og verði þá með litmyndum.
2. NæStu bekkjum fyrir ofan „Ljósgeisla“-bekkina má
kenna úrval úr biblíusögum þoini, sem fermingarb örin eru
látin læra. Vona eg, að biblíusögur með myndum, fyrir börn
á þessu, reki, komi út áöur en langt um líður.
3. Fermd börn mæfcti svo láta lesa í nýja testamentinu,
byrja á einhverju guðspjallinu og lesa það alt. Geta kennarar
þeirra barna hæglega útvegað sér bók með útskýringum sér til
stuðnings. Hver prestur í kirkjufélaginu, sem leitað væri til,
myndi hjálpa til með það. — Um lexíur úr gamla testamentinu
er naumast að tala að svo stöddu. Þær geta ekki orði ð kendar
svo í neinu lagi sé, á meðan ekki er hægt að fá neina biblíu.
Óski einhvtr frekari upplýsinga eða leiðbeininga, er honum
velkomið að skrifa mér, og skal eg svara eftir þjví sem eg best
get og hefi vit á.
„Ljósgeislari“ fást eins og að undanförnu hjá hr. H. S.
Bardal í Winnipeg, ioc. eintakið, þegar fleiri eru keypt í einu,
eella 15C.
N. Steingrímur Þorláksson,
Selkirk, Man.