Póst- og símatíðindi - 01.09.1956, Page 7

Póst- og símatíðindi - 01.09.1956, Page 7
7 3% 1956. Umburðarbréf nr. 37. — Umdæmisstöðvarnar, Vm og allar 1. fl. B og 2. fl. stöðvar. — Athygli skal vakin á því, að vísitala á laun fyrir mánuðina september, olctóber, nóvember og desember 1956 hefur verið ákveðin 78 — sjötiu og átta — prósent. Tilkynnið eftir þörfum. % 1956. Umburðarbréf nr. 38. — Umdæmisstöðvarnar og 3. flokks stöðvar í R-umdæmi. — Ákveðið er, að 130-aura gjald af útförnum viðtalsbilum og símskeytum á 3. flokks slöðvum verði áfram og þar til öðruvísi verður ákveðið 230 aurar að meðtöldum uppbótum. Tilkynnið eftir þörfum. Wí> 1956. Umburðarbréf nr. 39. — Umdæmisstöðvarnar og Vm. — Frá og með 19. sept. 1956 er landssímastöðin að Stóru-Giljá í Torfalækjar- hreppi í Austur-Hiinavatnssýslu lögð niður. Frá sama tíma er þar notendasími frá Blönduósi, en Þingeyrarbúið notandi frá Hnausum. Tilkynnið eftir þörfum. 2% 1956. Umburðarbréf nr. 40. — Til allra stöðva. — Á 50 ára afmæli landssímans sendi ég starfsfólkinu alúðarkveðju og innilegar þakkir fyrir vel unnin störf og ágæta samvinnu. Sá sameiningar- og fjölskylduandi, sem ríkir rneðal símafólksins, á sér sennilega engan líka. Það sker sig úr í stundvísi, árvekni og skyldurækni, og það skilur þýðingu þjónustustarfsins fyrir þjóðina, og vokur í starfi sínu velvild til stofnunarinnar. Við skulum vona að þessi andi megi eflast, og að við getum ávallt í góðu samstarfi unnið að vaxandi viðgangi símans í landinu. Gunnlaugur Briem. 2% 1956. Umburðarbréf nr. 41. — Til allra stöðva. — í tilefni af 50 ára afmæli Landssíma íslands þann 29. september 1956 hefur verið ákveðið að þennan dag verði þjónustutími simstöðvanna eins og daginn fyrir stórhálíðar. G. Briem. ___________________ Magnús Jochumsson. Gutenberg.

x

Póst- og símatíðindi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Póst- og símatíðindi
https://timarit.is/publication/667

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.