Póst- og símatíðindi - 01.04.1959, Síða 3

Póst- og símatíðindi - 01.04.1959, Síða 3
3 Bögglapóstsamningurinn. 5. g. (5) ÁkvæÖunum um fyrirmæli sendanda á fylgibréfinu er raðað um og þau gerð nokkru fyllri. 10. g. (10) Endastöðvar- og landtransitgjöld hafa verið hækkuð, og grunngjaldinu fyrir flugpóstböggla breytt. 16. g. (16) Viðbótargjöldum hefur verið breytt. Það athugist, að taflan yfir þessi gjöld er sett inn á skökkum stað af prentsmiðjunni. Hún á að vera á eftir sjálfri greininni. 19. g. (18) Geymslufrest böggla, sem er 14 dagar, má lengja upp í mánuð, ef innanlands- löggjöf ákvörðunarlandsins leyfir. 21. g. (20) Ákvæði 6. og 7. liðs þessarar greinar um heimild fyrir töku aukagjalds á einnig við böggla, sem leiðbeint hefur verið slcakkt og þurfa að endursendast, svo og böggla, sem endursendir eru til upprunastaðar samkvæmt 7., 20. og 29. gr. 4. lið. 22. g. (21) Á meðan póststjórn álcvörðunarlandsins hefur ekki fengið nein fyrirmæli frá sendanda, er henni heimilt að afhenda böggul eins og áritun hans segir til, eða öðrum tilgreindum viðtakanda eða áframsenda hann eftir nýju heimilisfangi. Endursendir bögglar skulu eftir því sem mögulegt er fylgja sömu leið og þeir komu. Lokabókun póstbögglasamningsins. III. gr. Ákvæði 20. gr. um afturköllun og utanáskriftarbreytingu gilda ekki fyrir Bretland, Norður-írland og brezkar nýlendur. V. gr. Ráðstjórnarríkin, Ukraina og Hvíta-Rússland leyfa ekki fyrst um sinn böggla naeð þessum fyrirmælum frá sendanda: „Seljist fyrir reikning og áhættu sendanda“. Starfsreglugerð póstbögglasamningsins. 104. g. (104) Ekki má tilgreina nema einn einstakling, persónu eða fyrirtæki sem viðtak- anda póstbögguls, þó má leyfa áritanir svo sem: Hr. A fyrir hr. B eða Banki A fyrir hr. B. 105. g. (105) Á böggla, sem hafa lifandi dýr að innihaldi, skal líma miða greinilega áritaðan: .Animaux vivants“. 106. g. (106) Á tollskránni skal innihald böggulsins talið upp nákvæmlega, en ekki með almennum orðatiltækjum. Heimilt er sendanda að hefta við fylgibréfið auk toll- skrárinnar hvert annað skjal (vöruskrá, innflutningsleyfi o. s. frv.), sem er nauð- synlegt vegna tollmeðferðarinnar.

x

Póst- og símatíðindi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Póst- og símatíðindi
https://timarit.is/publication/667

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.