Morgunn - 01.06.1970, Page 9
Séra Benjamín Kristjánsson:
Hlutverk sálvísinda í nútíma-
þjóðfélagi
☆
(Inngangserindi á umræðufundi í Sálarrannsókna-
félagi íslands.
íig hefði frekar kosið að nefna umræðuefnið: hlutverk
sálarinnar í nútímaþjáÖfélagi, því að þá lægi svarið ljósara
fyrir. Væri engin sál, væri heldui' ekkert þjóðfélag, engin
vísindi, engin menning! Þá væri jörðin ennþá auð og tóm,
og myrkur grúfði yfir djúpinu, eins og var i árdaga áður en
Guð hóf að skapa heiminn.
/ upphaii var orðiS.
Þessi sama hugsun kemur í ljós i hinu djúpsæja trúarljóði,
sem Jóhannesarguðspjall hefst með: „1 upphafi var orðið, og
orðið var hjá Guði og orðið var Guð. . . . Allir hlutir eru gerðir
fyrir það, og án þess varð ekkert til, sem til er orðið. í því
var líf, og lífið var ljós mannanna".
Hér er fluttur sá boðskapur, að andinn, sem vér köllum
Guð, sé upphaf alls. Frá honum, fyrir hann og til hans séu
allir hlutir. Það er hann, sem skapar. Lífið er hans, vizkan
hans og kærleikurinn. Og tilgangur lifsins er að gera menn-
ina að raunverulegum guðsbörnum, ekki einhverjum voluðum
niðursetningum i himnaríki, sem fyrir náð er hleypt þangað
inn til að syngja þar halleluja um alla eilífð.
1 griskum hugmyndaheimi táknar oröiö fyrst og fremst