Morgunn - 01.06.1970, Blaðsíða 14
8
MORGUNN
Hiti innri méSvitund.
Frá aldaöðli hefur verið til með flestum ])jóðum sú innri
meðvitund, að mennirnir lifi i annari veröld að þessari lokinni.
Þetta hafa allir meiri háttar spámenn boðað liiklaust og talið
með auðsæjum sannindum. Þannig sagði Kristur: Ég lifi og
þér munuð lifa! Þetta hefur sálræn reynsla kynslóðanna stað-
fest, enda hefur því verið haldið fram i flestum trúarbrögðum,
ekki sízt í kristindóminum.
Þeim mun undarlegra er það, hvað ódauðleikatríiin hefur
átt erfitt uppdráttar í náttúruvísindunum. Einhverra hluta
vegna hafa raunvísindamenn alltaf haldið, að allar hugmyndii-
um framlíf sálarinnar væru ekki annað en barnaleg ósk-
hyggja. Mönnum sé ljúft að halda sig svo mikla, að þeir megi
með engu móti missast úr alheiminum og verði því að lifa
um alla líð! En allt sem við kemur lifinu í hinum æðsta skiln-
ingi, það er að segja andinn, vizkan og ástúðin, halda þessir
menn að sé eitthvað óraunverulegt, skylt skáldskap eða listum
ef til vill. Um það megi ræða með sæmilegri virðingu, en
ósköp sé það þó draumórakennt og í lausu lofti byggt. Undir-
staðan sé öll í vorum synduga kroppi. Þaðan stafi þrár okkar
og langanir, sem ímyndunaraflið reyni að hefja á liærra stig
og gæða ódauðleik. En allt sé þetta þó á einhvern hátt bundið
starfi heilans og líffæranna. Og þegar líkaminn deyr og leys-
ist i frumefni sín, sé ævintýrið þar með húið. Þá deyi andinn
einnig. Þá elski menn ekki framar, þá fyllist sálin ekki lengur
angist og óró, unz hún hvilist í Guði.
Ef við athugum þetta, þó ekki sé nema lauslega, er auðsætt,
að þessi hugmynd byggist ekki á neinu öðru en trú efnishyggj-
unnar, að ekkert sé til nema efnið, sem verið hafi frá upphafi
og verða muni til eilifðar. Sálin sé ekki annað en lítið ljós á
skari efnisins, sem logar ckki nema þá stuttu stund, meðan
hið jarðneska líf varir. Á engan hátt er þessi trú studd sterkari
rökum en trú ódauðleikans. Eins og áður hefur verið vikið að,
er hin andlega hlið mannsins stórum merkilegri en hin efnis-
lega. Hví skyldi þá hún liða undir lok?