Kylfingur - 01.05.1999, Side 7

Kylfingur - 01.05.1999, Side 7
hendi og var hann keppnismaður í mörg- um íþróttagreinum: „Ég var að keppa á skíðum, fótbolta og handbolta, en golfíð fór alveg fram hjá mér þar til 1966 þegar ég var búinn að stofna heimili og farinn að vinna hjá Olíuverslun íslands. Dag einn fór ég með Önundi Ásgeirssyni, for- stjóra mínum upp í Grafarholt og fékk að slá eitt högg af fyrsta teig. Þetta örlaga- ríka högg fór fram fyrir veg og þá var ekki aftur snúið og gekk ég samstundis í Golf- klúbb Reykjavíkur." Sló á milli tanka í Laugarnesi „Það var ekki sökum að spyrja, golfið heltók mig strax í upphafi. Á þessum árum þurfti ég í starfi mínu að ferðast í kringum landið og hafði alltaf með mér eina eða tvær kylfur og nokkra bolta, lít- ið var um golfvelli á landsbyggðinni og liggja því boltar frá mér á hinum ýmsustu stöðum og hafði ég sérstaklega gaman af að slá þar sem hæðin var mikil, hvert bolt- anir fóru var svo annað mál, enda leitaði ég aldrei að þeim, en sjálfsagt liggja enn- þá nokkrir boltar sem ég á einhverstaðar á Vestfjörðum og Austfjörðum.“ Ekki voru þetta einu æfingamar sem Svan stundaði í byrjun golfferils síns: „Ég æfði mig á vinnustað mínum í Laugames- inu með því að slá á milli tanka. Þetta var góð æfing, því auk tankana var hús öðru megin sem að sjálfsögðu ekki mátti hitta og girðing hinum megin. Þama held ég að ég hafi fengið mína bestu æfingu því öll mín fyrstu ár í golfinu þótti ég vera mjög beinn í höggum, var nánast alltaf á miðri braut.“ Eins og flestir sem byrja af miklum krafti í golfinu fór Svan strax að keppa: „Ég varð nýliðameistari 1967 og það sumar lækkaði ég í forgjöf niður í 17. Mínir helstu golffélagar á þessum fyrstu ámm mínum vom Helgi Hjálmarsson og Halldór Sigmundsson og lékum við helst seint á kvöldin og man ég eftir kvöldum í september þar sem við vomm að klára í niðamyrkri.“ Svan var ekki búinn að vera lengi félagi í Golfklúbbi Reykjavíkur þegar hann hóf afskipti af félagsstörfum og vallargerð: „Ég man ekki hvort það var 1967 eða 1968 sem ég var fenginn til að vera í kappleikjanefnd. Síðan leiddi hvað af öðm. Ég var mikið einn að spila og gaf mig þá á tal við Ólaf Guðmunds- son, sem var eini starfsmaður- inn á vellinum og lét í ljós mínar skoðanir um hvað mætti betur fara í gerð vallar- ins, en því miður að mínu mati var ekki nógu mikill skilningur hjá þeim sem voru við stjómvölinn á mikilvægi þess að ná vellinum í gott lag. Ólafur hafði nóg með að halda í horfinu því sem búið var að gera. Allt annað var unnið í sjálfboðavinnu, meðal annars allur grjóttíningurinn Svan Friðgeirsson á sínumfor- mannsárum. Myndin er tekin þegar formaður klúbbsins var nýbúinn að fá einkabílastœði. KYLFINGUR 7

x

Kylfingur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.