Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 9

Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 9
kvæmdagjald sem ævifé- lagamir þurftu að borga eins og aðrir og má segja að sumir hafi tekið það óstinnt upp. Þegar ég tók við hafði ég enga hugmynd um þessar væringar sem í gangi voru. Eg var svo skynsamur þegar ég var beðinn um að taka við for- mannsstarfinu að ég fékk að velja mér menn til að starfa með og þar á meðal vom menn sem höfðu meira peningavit en ég, má þar nefna Jón Hjálm- arsson, einhver besti mað- ur sem ég hef kynnst um ævina, einnig fékk ég með mér Olaf Þorsteinsson og Guðmund Ofeigsson. Þessir menn urðu síðan kjaminn í stjóminni og þeir sem ég vann mest með. Þegar við tókum við klúbbnum var hann nánast gjaldþrota og því miður vom öfl innan klúbbsins sem vom ekkert á móti því að hann færi í gjaldþrot. Til að bjarga Golf- klúbbi Reykjavíkur lánaði Jón Hjálmarsson klúbbn- um eina milljón króna, sem var mikill peningur þá, sem skyldi greiðast vaxtalaust þegar klúbbur- inn hefði tækifæri til. Á þessari peningaupphæð ásamt því að við fengum umboð fyrir Slazenger golfvömr, sem við fórum að selja, björguðum við okkur fyrir hom. Það væri löng saga að segja frá því hvemig við björguðum okkur, listinn var langur af reikningum sem klúbburinn skuldaði og suma reikninga tók ég að mér að borga úr eigin vasa. Golfskálinn var nán- ast steinsteypan ein og nú var leitað til góðra félaga sem lögði mikla vinnu í að koma golfskálanum í við- unandi horf og á ég mörg- um góðum mönnum að þakka að við skyldum hafa þraukað þessi ár. Auk þeirra sem ég hef nefnt vil ég nefna þau Mynd þessi var tekin þegar verið var að grafa skurði þvertyfir 15. og 16. braut. Svan Friðgeirsson erfyrir miðri mynd. A myndinni eru einnig tveir gröfumenn ásamt fjórum starfsmönnum Grafarlioltsvallar, Jóni Péturssyni, Sigurði Hafsteinssyni, Haraldi Olafssyni og Geir Svanssyni. merku hjón Viðar Þorsteinsson og Guð- rúnu Eiríksdóttur sem voru ávallt tilbúinn til að starfa fyrir klúbbinn og hafa unnið Þegar Nesklábburinn var stofhaður urðu vinslit milli margra. Svan sýndi sáttavilja í verki þegar hann var formaður GR með því að ganga í Nesklúbbinn og er myndin tekin afhonum á Nes- vellinum. honum mikið gagn í gegnum árin. Marg- ir fleiri unnu mikið og óeigingjamt starf.“ Þegar ekkert fjármagn var til að koma brautum á Grafarholtsvelli í lag tók Svan upp á því að úthluta mönnum brautir. „Eg sagði sem svo, þama er flötin og nú megið þið gera það sem þið teljið heppilegast til að hér verði skemmtileg golfbraut. Sem dæmi get ég nefnt að Haukur, vinur minn Guðmundsson, og Jón Olafsson ásamt vinum þeirra fengu það verk að laga til sjöundu brautina og það voru þeir sem gerðu glompumar sem þar em, eftir sínu höfði. Ólafur Þorsteins- son ásamt sínum vinum tók að sér þrett- ándu braut og þar var hreinsað mikið grjót og þar setti Ólafur fyrstu trjámnnana á völlinn.“ í leit að vetrargolfvelli Eins og allir félagar í Golfklúbbi Reykjavíkur vita þá er ekki hægt að leika vetrargolf á Grafarholtsvelli. „Þegar aðrir golfklúbbar fóm að rísa í kringum okkur kom fljótt í ljós að á þeirra völlum var hægt að leika mun lengur á haustin og byrja fyrr á vorin. Við sem vomm í stjórn fengum oft að heyra þetta, því var það 1970 og 1971 að ég, Ólafur Þorsteinsson og Guðmundur Ófeigsson, löbbuðum alla strandlengjuna frá Kollafirði og út að Álftanesi í leit að hentugu svæði til að leika vetrargolf og niðurstaðan var Korp- úlfsstaðir. Vomm við sammála um að það KYLFINGUR 9

x

Kylfingur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Kylfingur
https://timarit.is/publication/669

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.