Kylfingur - 01.05.1999, Blaðsíða 11
Skýrsla stjóraar GR
- flutt á aðalfundi 30. nóvember 1998
Þrír félagar í Golfklúbbi Reykjavíkur
létust á árinu, það voru þau: Guðrún Stur-
laugsdóttir, Þorsteinn Alfreðsson og fyrr-
um forseti GSI Konráð Bjamason.
Eg vil biðja fundarmenn að minnast
þessara látnu félaga, með því að rísa úr
sætum.
Á starfsárinu var stjóm Golfklúbbs
Reykjavíkur þannig skipuð:
Garðar Eyland formaður, Ágúst Geirs-
son varafomiaður, Arnar Guðmundsson
ritari, Jens Sörensen gjaldkeri, Hilmar
Karlsson, Haukur Öm Bjömsson og
Ómar Kristjánsson meðstjómendur. I
varastjóm: Kristín Magnúsdóttir, Þor-
steinn Þorsteinsson og Gestur Jónsson.
Haldnir voru 32 bókaðir stjómarfundir.
Eins og undanfarin ár sat varastjóm alla
stjómarfundi, ásamt framkvæmdarstjóra.
Auk stjómaifunda sátu stjómarmenn
fjölda annarra funda fyrir hönd klúbbsins,
svo sem á þingi G.S.Í., Í.B.R, Í.S.Í, svo
eitthvað sé nefnt.
Skráðir félagar í Golfklúbbi Reykjavík-
ur þann 31. okt.1998, voru 1188 og er
skiptingin á þann hátt að karlar em 947 og
konur 241. Á árinu vora 269 nýjir félag-
ar teknir inn í klúbbinn, en út af skrá fóru
88. í lok síðasta starfsárs vora félagar
1007, fjölgað hefur því um 181 félaga er
það tæplega 18% aukning.
Síðasta starfstímabil er með því lengsta
sem um getur í sögu klúbbsins eða á sjö-
unda mánuð, kaldur vetur og frekar kalt
vor gerðu það að verkum að Grafarholts-
völlur kom frekar seint til en þó varð mjög
ákjósanlegt golfsumar, sem endurspegl-
aðist í löngu golftímabili eins og áður er
getið.
Eins og ég hef áður sagt þá er aukin
þekking, ný tæki og ný efni sem notuð era
í dag að skila sér í því að gróður tekur fyrr
við sér, þrátt fyrir kalda veðráttu. Eg vil
geta þess sérstaklega að hér í Grafarholti
var leikið á sumarflötum frá því fyrst í maí
þar til nú í endaðan október eða um það
bil sex mánuði. Að Korpúlfsstöðum var
leikið á sumarflötum frá því í apríl fram í
nóvember en þar hefur síðan verið leikið
á vetrarflötum, sýnir það glöggt að golf-
tímabil okkar er að lengjast.
Síðastliðið starfstímabil markar kafla-
skil í sögu klúbbsins þar sem leikið er á
tveim völlum heilt tímabil.
Það er öllum félögum ljóst að aðstaða
okkar er gjörbreytt með tilkomu þeirrar
nýju aðstöðu sem sköpuð hefur verið að
Korpúlfsstöðum.
Sem dæmi um það var Meistaramótið
haldið á báðum völlunum og leiknir tveir
hringir á hvorum velli, ekki er annað að
heyra en að almenn ánægja hafi verið með
þetta fyrirkomulag.
Tekjuafgangur árið 1998 fyrir afskriftir
nemur kr. 9,573,467,- er það ríflega sú
upphæð sem við gerðum ráð fyrir í okkar
rekstraráætlun.
Tekjur aukast úr 48,4 milljónum í 54,8
milljónir sem skýrist af þeirri miklu með-
limaaukningu sem átt hefur sér stað.
Vextir og verðbætur eru 4,8 milljónum
hærri en á síðasta ári, er sú aukning til-
komin vegna framkvæmda að Korpúlfs-
stöðum.
Uppbygging hefur verið mikil á undan-
fömum áram og hafa skuldir aukist í kjöl-
farið en þær eru eins og félögum er kunn-
ugt um, vegna endurbygginga á húsi og
nýframkvæmda að Korpúlfsstöðum.
GR hefur greiðsluloforð frá Reykjavík-
urborg til að annast stóran hluta greiðslna
á áðurgreindum skuldum fram til ársins
2000.
Vaxta og bankakostnaður, era vegna
innheimtu á félagsgjöldum, í gegnum
greiðslukortaviðskipti.
Gjaldkeri klúbbsins mun gera grein fyr-
ir reikningum hér á eftir.
Framkvœmdir við hús í Grafar-
holti
Á starfsárinu var skipt um glugga í sal
og á skrifstofu, fyrir utan það var einung-
is átt við nauðsynlegt viðhald á húsi og
búnaði.
Formaður húsnefndar var: Haukur Öm
Bjömsson, aðrir í nefndinni vora Ágúst
Geirsson og Jens Sörensen.
Framkvœmdir við golfvöll í
Grafarholti
Framkvæmdir við golfvöllinn hér í
Grafarholti hafa verið miklar á undan-
förnum áram en af skiljanlegum ástæðum
hafa þær ekki verið miklar í sumar, þó var
lagfærð 6. flötin til bráðabirgða.
Howard Svan breskur golfvallahönnuð-
ur kom hér til landsins á haustdögum og
ákvað stjómin að fá hann til að gefa okk-
ur kostnaðartölur í hönnun á breytingum
á flötum teigum og legu brauta. Þótti
stjómarmönnum álitlegur kostur að eiga
hönnun að breytingum til nota í framtíð-
inni, ef uppsett verð væri innan þess
ramma sem henta þætti.
Eftir skoðun á vellinum með formanni
vallamefndar og vallarstjóra skilfaði hann
skýrslu um völlinn og var ákveðið að
kaupa af honum þá skýrslu.
IMssÆþ Mm i? SÉ
KYLFINGUR 11