Barnablaðið - 01.04.1951, Side 14
12
BARNABLAÐIÐ
svo vel, að ;hún tilheyrði þeim.
Henni var ljóst, að þegar Jesús
kæmi inn í heimili þeirra, mundi
það verða eins hamingjusamt eins
og heimili Maí frænku og Hans
frænda. Þá heyrði hún glaðværa
rödd Óla kalla til sín: „Gróa! Gróa,
komdu út,“ og Gróa svaraði: Já,
Óli, ég kem.“ Endir.
Þýtt úr norsku. K. Þ.
Bæn litlu stúlkunnar!
í smábæ í Kína bjó lítil stúlka,
sem gekk í skóla hjá trúboðunum.
Litla stúlkan liafði gefið Jesú hjarta
sitt. Hún var rnjög samvizkusöm og
iðin við námið. Það var líka oft,
þegar skólinn var búinn á daginn,
að kennslukonan tók liana með sér,
og fóru þær þá í herbergi þar sem
þær voru einar saman, og þar
kenndi kennslukonan lienni að
biðja til Jesú; þá töluðu þær við
Jesú um það, sem lá þeim þyngst
á hjarta.
En á heimili litlu stúlkunnar var
enginn, sent skildi hana. Þegar hún
talaði um Herrann Jesii eða reyndi
að biðja til Hans, varð afi liennar
alltaf svo reiður.
Hann var gamall múhameðstrúar
maður og var stoltur yfir trú for-
feðra sinna, og hann vildi ekki að
neinn af fjölskyldunni hefði aðra
trú.
Litla stúlkan var oft barin, og
stundum fékk hún þung högg, þeg-
ar liún sást á bæn til Jesú.