Barnablaðið - 01.04.1951, Side 18

Barnablaðið - 01.04.1951, Side 18
16 BARNABLAÐIÐ ---------------------- BARNABLAfllÐ ; kemur út fimm sinnum á ári, tvö-; falt blað í hvert skipti, — alls 10; ;' blöð árlega. — Verð kr. 7.50 ár- ; gangurinn, og greiðist í febrúar. —; í lausasölu kostar blaðið kr. 1.50 eintakið. Útgefandi: Fíladelfía, Akureyri. Afgreiðslan er hjá Jóhanni Pálssyni, ' Glerárgötu 3, Akureyri. Prentverk Odds Björnssonar h.f. Einnig þið getið orðið mannaveiðarar! í Markús 1 : 16—20 lesum við frásöguna um það, er Jesús kallar tvenna bræður til fylgdar við sig, með öðrum orðum, bað þá að gjör- ast lærisveina sína. Þennan dag fengu þessir bræður, köllun til sér- staks hlutverks: Að verða manna- veiðarar! Þetta var mikilvæg stund í lífi þessara fiskimanna, já, og mjög alvarleg einnig. Þeir áttu að skipta um starfa. Hvernig skildu þeir nú svara slíkri köllun? Var það ekki að voga öllu, að hætta sjó- ntennskunni, sem var svo arðsöm, einmitt núna? Hvaða launa gátu þeir vænzt af þessum nýja vinnu- veitanda sínum? Já, h\að skildu nú fjölskyldur þeirra segja við þessu, og fólkið ylirleitt? 'Yfirstandandi tími var heldur ekki svo glæsilegur. Jóhannesi skírara hafði verið varp- að í fangelsi, en þeir höfðu áður verið lærisveinar hans. Það gat einn- ig farið á sama veg fyrir „Spámann- inum frá Nazaret". — Ekkert af þessum hugsunum ríkti í hugum þessara manna, þegar Jesús kallaði þá, því að þeir yfirgáfu allt, „þegar í stað“ og fylgdu Honum. Þetta var afgerandi og fljóttekin ákvörðun, en það merkilega er, að þá iðraði hennar aldrei. Þeir vissu frá fyrstu stundu, að það var eitthvað að fá hjá Jesú, sem ekki var hægt að fá hjá neinum öðrum. Og enginn tal- aði með slík'um myndugleik og kærleika, sem Hann. Þá langaði að vita meira um þetta undursamlega ríki, sem Jesús prédikaði, og Jregar þeir væru búnir að fá meiri þekk- ingu á því, ætluðu Jjeir að boða Jiað öðrum, og vinna Jjá fyrir Jesú og ríki Hans. Þetta er það, sem kallað er „að veiða menn". Einnig þið, drengir og stúlkur, getið verið með að vinna aðra fyrir Jesú. Viljið þið vera með í þvi starfi? Þú, sem lest þetta, liefur áreiðan- lega einhvern bróður, systur cða kunningja, sem þú getur leitt til Jesú. Heyr! Jesús kallar í dag: „Fylg Jni mér....... ég vil gera þig að mannaveiðara!“

x

Barnablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.