Barnablaðið - 01.12.1966, Page 9
Hugleiðing á kvöldgöngu
Fyrir utan raðhús nokkurt við Skúlagötu,
stóð dálítill liópur stálpaðra drengja í fjör-
ugum samræðum. Ég var að fara á samkomu
í Fíladelfíu, gekk inn Skúlagötu og leið mín
lá þess vegna fram hjá þessum drengjahóp.
Ég gekk hægt, því veðrið var gott og ég liafði
nægan tíma. Þegar ég nálgaðist drengina, sá
ég að nokkrir þeirra fóru að gefa mér horn-
auga og umræðurnar hættu. Ég gekk rólega
eins og fyrr, en er ég var komin nokkur skref
fram hjá þeim, heyri ég kallað ,.,Fíladelfía“.
Ég gat ekki varizt brosi og um mig fór eins
og gleðibylgja. Vitanlega heyrði ég háðið,
sem lá í orðinu og það var reyndar ekki það,
sem gladdi mig svo mikið, heldur er ég hugs-
aði um, hvers vegna ég var á leið í Fíladelfíu
og hvað ég geri í Fíladelfíu, að hjarta mitt
tók viðbragð.
Og hvers vegna er ég svo í Fíladelfíu?
Jú, ég er alin upp í trúuðu heimili, og
hef gengið í sunnudagaskóla frá því ég
var mjög ung. Á þessum stöðum lærði ég
að þekkja Jesúm. Sem barn trúði ég, að
hann væri sonur Guðs. Og því trúi ég enn.
Mjög fljótlega eftir að ég hafði lært að
lesa, fór ég að lesa Nýja testamentið. Og þar
stóð, að allir nienn hefðu syndgað. Þó að ég
væri ung að aldri, skildi ég, að þar var ég
engin undantekning.. Þess vegna bað ég
Jesúm að fyrirgefa mér syndirnar.
Síðan þann dag hef ég viðurkennt mig
„frelsaða".
Það voru ekki foreldrar mínir, sem tóku
þessa ákvörðun fyrir ntig, heldur ég sjálf. Og
það er það bezta, sem ég nokkru sinni hef
gert. Því að einmitt hjá Jesú hef ég fundið
hamingju fyrir líf mitt. Ég hef nú grundvöll
til að byggja líf mitt á og sé tilgang með líf-
inu.
Það eru margir sem álíta að hinir „trú-
uðu“ fari á mis við alla lífsgleði af því að
þeir sækja ekki skemmtanir. Og geti jjess
vegna ekki notið lífsins.“ En Jretta er nokkuð,
sem ég get aldrei samjrykkt, því að gleði og
hamingja míns lífs er að fylgja Jesú.
Ég er vitanlega eins og hvert annað ung-
menni. Ég vil njóta lífsins rétt eins og þú.
Og j:>að geri ég. En aðeins á annan liáít, og
á miklu betri liátt. Því sú gleði, sem ég fann
hjá Jesú, hefur varað allt frá Jreirn degi, er
ég frelsaðist. Það er ekki aðeins gleði, sem
ég á, heldur friður, öryggi og fullvissa um
eilílt líf.
Þess vegna vinur minn, ef þú hefur ekki
enn fengið Jrað út úr lífinu sem þú þráir,
þá farðu að ráðum mínum og hinna frelsuðti
og bið Jesúm Krist um fullnægju fyrir líf þitt.
Guðný Jónasdóttir.
Með hverju getur ungur rnaður haldið
vegi sínum hreinum?
Með því að gefa gaum að orði þínu.
Ég leita þín af öllu hjarta
lát mig eigi villast frá boðum þínum.
Ég geymi orð þín í hjarta mínu, til
þess að ég skuli eigi syndga gegn þér.
119. sálmur Daviðs, vers 9—11.
9