Barnablaðið - 01.12.1966, Qupperneq 26
Hugrakkur drengur
í ágústmánuði í fyrra sumar, árið 1965,
gátu íslenzk blöð og einnig erlend nm frægan
íslending, Sverri Þóroddsson. Gátu blöðin
þess, að hann liefði þá verið mjög hætt kom-
inn á kappakstursbrautinni í Hróarskeldu í
Danmörku. En þar tók hann þátt í kapp-
akstri.
„Um 30 þús. áhorfendur voru meðfram
brautinni og sáu þeir skelfingu lostnir að bíll
Sverris hentist upp í loftið og gegnum ryk-
mökkinn mátti sjá ökumanninn hendast út
úr bílnum.
En áhorfendurnir önduðu léttar, er Sverrir
sást standa þegar á fætur og hlaupa út fyrir
brautina, svo að hann yrði ekki fyrir næsta
bíl.
Virtist það ganga kraftaverki næst, að
Sverrir slapp alveg ómeiddur, en bíllinn
Iians var ónýtur.
í viðtali við „Berlinske Tidende“ sagði
Sverrir, að hjólbarðinn að framan hafi
sprungið, er hann ók yfir moldar- og grjót-
hrúgu og það hafi verið ástæðan fyrir því
að bíllinn kollsteyptist. . . .
Bíll Sverris var á 140 km. hraða, er hjól-
barðinn sprakk. Hann reyndi að hafa vald
á bílnum og hallaði sér fast að stýrinu, er
hann tókst á loft.
26