Barnablaðið - 01.12.1966, Page 29
Brotna skálin
Framhald af bls. 8.
QÍmmt í lierbergi pabba og möinmu. Þau
voru kannski sofnuð. Hvað vissi hún um
það. Inga spennti greipar til bænar. Hún
bað fyrir morgundeginum og framtíðinni.
En allan tímann sveimaði sundurbrotin
skálin fyrir innri augurn hennar.
Hún snéri sér fram og aftur í rúminu til
að geta sofnað. Reyndi að útiloka allan
heiminn. En brotna skálin. — Andlit mönnnu
í brotunum. — Augu mönnnu. — Allt var það
komið að nýju. Eftir nokkurra tíma árangurs-
lausa tilraun til þess að reyna að sofna, tók
Inga ákvörðun. Hún varð að vekja mömmu til
þess að biðja hana fyrirgefningar. Nú skildi
hún loksins, hve röng og óréttlát hún hafði
verið við mömmu sína, sem varð alltaf að
vinna og hafði umhyggju fyrir heimilinu
frá n'.orgni til kvölds. Hún kveikti á lamp-
anum. Þá heyrði hún, að það brakaði í rúmi
möramu sinnar Og það var kveikt á nátt-
borðslampanum inni hjá henni. Inga gekk
að hurðinni, hún stóð þar nokkrar sekúndur
og horfði á inömmu sína. Hún lá þar glað-
vakandi í rúminu.
Allt í einu brosti hún við henni. Nrx
brotnaði skelin sem hafði verið um hjarta
Ingu. Þá lyftist hið dimma ský af himni
hennar og feyktist burtu fyrir vindum him-
insins. Þegar Inga kraup við rúm mönnnu
sinnar og bað um fyrirgefningu breyttist allt.
Ég vissi að þú mundir koma, sagði hún
stillilega. Þess vegna vildi ég ekki sofna.
Þegar Inga var komin aftur í rúmið sitt
og lokaði augunum til að sofna, brosti hún
í myrkrinu. Hún sá ekki lengur brotnu skál-
ina. En hún sá rnóður sinnar þakkláta, bros-
andi andlit, eins og það var, þegar þær mætt-
ust á brú fyrirgefningarinnar.
BÆN
Drottinn Jesús, ég vil trúa á þig. Ég þakka
þér að þú gafst líf þitt í dauðann, fyrir mig,
á krossins tré á Golgata. Fyrirgef mér syndir
mínar og gef mér hreinleika og frið. AMEN.
Prinsessa - eða hvað?
Barnablaðinu hefur verið send mynd
af tveim ungum dömum, sem við von-
um að eigi eftir að verða lengi við lýði
og koma við sögu. Efuinst við ekki að
önnur eigi eftir að gera það. Hvað sem
vinkonu hennar líður. Myndinni fylg-
ir bréf, sem hljóðar svo:
Kœra Barnablað!
Ég sendi þér hér borgun fyrir þetta dr,
svo œtla ég að senda þér mynd af mér,
sem ég cetla að biðja þig að birta í
blaðinu. Ég er íl ára, verð 12 dra 30.
desember. — Vertu blessað!
Elísabet Magnúsdóttir,
Hvammi Fáskrúðsfirði.“
E.s. Hvað skyldi vinstúlka Elísabetar
heita sem er með henni á myndinni?
Finnst ykkur hún ekki vera fín? Hún
er klædd eins og prinsessa, með dýra
perlufesti. Hvað haldið þið, að hún
heiti?
29