Barnablaðið - 01.02.1995, Qupperneq 3
I upphofi...
Veist þú hvað Barnablaðið er gamalt blað? Það er orðið 56 ára. í október 1938 kom
fyrsta Barnablaðið út á Akureyri, það var átta blaðsíður, fullar af kristilegu efni fyrir
✓
börn. Arið 1952 fluttist blaðið til Reykjavíkur og í mörg, mörg ár hefur Fíladelfía forlag
gefið Barnablaðið út. Núna get ég sagt ykkur svolítið skemmtilegt, blaðið er aftur
komið til Akureyrar og það verður framvegis gefið út af Hvítasunnukirkjunni á
Akureyri.
Núna þegar nýtt fólk tekur við útgáfu blaðsins breytist auðvitað ýmislegt, þið
eigið eftir að sjá það smám saman. Ég heiti Lísa og sé um að taka saman efni í blaðið,
vitið þið að mig vantar eiginlega hjálp við það. Mig langar nefnilega til þess að í
Barnablaðinu sé mikið af efni frá börnum og þess vegna bið ég ykkur um að hjálpa mér.
Þið gætuð sent mér sögur sem þið hafið skrifað, bæði stuttar og langar og samið ljóð,
(ég hef sérstaklega gaman af ljóðum). Auðvitað kunnið þið brandara og gátur, það
þætti mér skemmtilegt að fá og auðvitað geta öll börn teiknað myndir. Þið vitið sjálfsagt
að Barnablaðið er kristilegt blað, það þýðir að í því er efni um Guð og Jesú, Biblíuna og
allt það sem stendur í henni, þið skuluð muna eftir því þegar þið sendið mér efni. Það
er ýmislegt fleira sem þið getið sent í blaðið, til dæmis sagt frá bænasvari (ef þú hefur
beðið Guð um eitthvað og hann hefur svarað bæninni, þá er það bænasvar). Þú getur
líka gefið vitnisburð (þá segir þú öðrum frá því að þú ert Guðs barn og vilt fylgja
honum). Ef þú átt skemmtilega ljósmynd þá þætti mér gaman að sjá hana og svo vil ég
að þið segið mér frá því hvað þið viljið hafa í blaðinu okkar. Kannski get ég ekki sett allt
það sem þið sendið í blaðið en ég ætla að lesa það allt vel. Þið þurfið að skrifa nafnið
ykkar, heimilisfangið og aldur inn í bréfin svo ég viti nú hver sendir hvað. Utan á
umslagið skrifið þið: „Barnablaðið pósthólf 208, 602 Akureyriy/.
s
Eg hlakka til að heyra frá ykkur öllum,
Lísa
5 Biblíufræðslan
6 Framhaldssagan
9 Svona gerum við
11 Smásagan
12 Myndasagan
Éfnisyfirlit
14 Hnoðri segir frá
16 Biblíuspæjararnir
19 Einu sinni var...
20 Heimsókn í kirkju
22 Úr ruslatunnunni
Forsíðumyndin
er tekin á Leikskólanum
Hlíðabóli. Krakkarnir á
myndinni heita Óli
Dagur, Nína, Tinna og
Ásta.
Bamablaðið
3