Barnablaðið - 01.02.1995, Qupperneq 14

Barnablaðið - 01.02.1995, Qupperneq 14
Hnoðri segir frá SKUNKINUM Nú skaltu halda fyrir nefið, ég ætla nefnilega að segja þér frá dýri sem gefur frá sér verstu lykt í heimi, ég ætla að segja þér frá skunkinum. Skunkurinn gefur frá sér voðalega vonda lykt, en þrátt fyrir það þá er hann dýr með fallegan feld, hann er svartur og hvítur á litinn og á bakinu eru rendur. Skunkar eiga heima í holum niðri í jörðinni og oftast koma þeir ekki upp nema á nóttunni. Skunkar geta ekki hlaupið hratt og þeir geta heldur ekki barist við önnur dýr sem vilja ráðast á þá og þá kemur nú vonda lyktin þeirra sér vel, hún verndar þá fyrir óvinum þeirra. Veist þú hvaðan vonda lyktin kemur? Það veit ég, hún kemur úr litlum poka undir skottinu á skunkinum og þegar hann verður hræddur þá sprautar hann vökva út í loftið sem ilmar svona hræðilega illa. Flest dýr verða veik af vondu lyktinni og geta ekki ráðist á skunkinn. Þú skalt ekki vera andlegur skunkur. Nú skilur þú líklega ekki hvað ég er að meina, ég skal gefa þér dæmi: Þegar þú ert óhlýðinn við foreldra þína þá líkar Guði ekki það sem þú gerir, hann finnur af þér lyktina alla leið upp í himininn. Jafnvel þó þú sért í fínum fötum og sért ný búin að fara í bað þá kemur vond lykt af þér þegar þú gerir ljóta hluti. Það að hlýða foreldrum okkar er mjög mikilvægt, Guð ætlast til þess af okkur að við hlustum á foreldra okkar og gerum eins og þeir biðja okkur um, jafnvel þó okkur líki ekki alltaf við það sem pabbi og mamma eru að segja. Börn sem hlýða ekki eru andlegir skunkar, Guð finnur vonda lykt af því sem þau gera og hann vill ekki finna lyktina af óhlýðni. Ekki vera andlegur skunkur! Hverju eigum við að hlýða? -gera pað sem við erum beðin um að gera, -koma heim á réttum tíma, -læra heima, -fara eftir umferðar- reglunum, -fara í rúmið, -bursta tennurnar og muna, eftir pví að sælgæti á bara að borða á nammideginum. Og auðvitað svo margt, margt fleira. Kannski getur þú búið til lista hér fyrir neðan yfir það sem þú vilt æfa þig í að hlýða. Ekki gefast upp þó það gangi ekki alltaf vel, mundu bara að æfingin skapar meistarann, þinn vinur Hnoðri 1. 2. 14 Bamablaðið

x

Barnablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.