Barnablaðið - 01.02.1995, Side 16
Biblíu
Spæjararnir
Halló, ég er Biblíuspæjarinn og pú getur kallað mig
Spæa. Heyrðu mig, kannski veistu ekki einu sinni hvað
Biblíuspæjari er? Ég verð auðvitað að byrja á að segja pér
pað, Biblíuspæjari er sá sem rannsakar Biblíuna og vill
læra að pekkja hana betur. Þess vegna er ég Biblíuspæjari. í
Postulasögunni 17. kafla 11. versi -Postulasagan, hún er í
Biblíunni- Þar er sagt frá pví að fólkið í Þessalonikuborg
rannsakaði ritninguna daglega, Þau vildu læra meira um
Guð og fá að vita hvað var rétt og lwað var rangt, vilt pú
líka vera Biblíuspæjari? Ég skal kenna pér pað.
Ég var búin að segja pér að Biblíuspæjarar rannsaka
Biblíuna, en peir gera fleira, peir íhuga pað sem peir
rannsaka, pað pýðir að peir hugsa um pað sem stendur í
Biblíunni og peir læra utan að ýmislegt sem getur komið
sér vel að vita pegar peir lenda í erfiðum málum. Jæja
Biblíuspæjari, pá er að snúa sér að spæjarareglunum; Það
fyrsta sem alvöru Biblíuspæjari parf að vita er að „Biblían
er orð Guðs". Getur pú munað pað; Biblían er orð Guðs.
Þess vegna eru allar vísbendingar sem við finnum í
Biblíunni sannar, pú getur alveg treyst pví. Ég held að
pessi fyrsta kennslustund í spæjarastörfum verði ekki
lengri núna en næst pegar við hittumst ætla ég að athuga
hve vel pú mannst spæjarareglu númer eitt! Biblían er orð
Guðs.
Hei, bíddu aðeins við, ég gleymdi næstum að segja
pér svolítið. Núna á eftirfærð pú að koma með mér að hitta
aðra Biblíuspæjara, pú skalt fylgjast með pví hvernig peim
gengur að læra af Biblíunni.
Sjáumst, Spæi
„Okkur leiðist svo, hvað
eigum við eiginlega að
gera?" Það er Stebbi sem
segir þetta og andvarpar
hátt. Stebbi er sex ára og
alls ekki vanur að láta sér
leiðast lengi í einu.
Yfirleitt hefur hann í nógu
að snúast, hann leikur sér
úti og inni og stundum
stríðir hann stóru systrum
sínum, þeim Fanney og
Kötu, en það er bara
sjaldan og ef satt skal
segja þá eru stelpurnar
ekki alltaf góðar við
Stebba greyið. En nú
leiðist þeim öllum
þremur. „Viljið þið ekki
bara fara og leika ykkur,
þið gætuð spilað saman,"
segir pabbi. „Æji nei ekki
spila/' kveinar Fanney,
„Stebbi er svo mikið
smábarn að það er bara
ekki hægt að hafa hann
með." Núna verður
Stebbi reiður, "Þetta er
ekki rétt, ég er ekkert
smábarn, þú getur bara
sjálf verið smábarn." Og
þó að Fanney meini í
rauninni ekkert með
þessu þá er bara svo
gaman að erta Stebba
aðeins og þess vegna
heldur hún áfram: „Víst
ertu smábarn alltaf að
klaga og vælir út af
engu." Og Stebbi öskrar
á móti: „Það er ekki satt,
er það nokkuð Kata, er ég
nokkuð alltaf að klaga?"
Pabbi þarf að byrsta sig
svo krakkarnir heyri í
honum þegar hann segir:
— BamablaSið
16