Barnablaðið - 01.02.1995, Page 17

Barnablaðið - 01.02.1995, Page 17
„Hættið þið nú að rífast og þá skal ég finna góða sögu til að segja ykkur." „O já, gerðu það." Stebbi er fljótur að reiðast en hann er líka fljótur að gleyma og nú hlakkar hann til að heyra söguna hans pabba. „Mér datt í hug saga um mann sem við lesum um í Biblíunni/// segir pabbi og horfir á börnin sín og nú er Kata fljótust að svara: "Æi, segðu okkur frekar ein- hverja spennandi sögu, um glæpamenn og löggur sem setja þá í fangelsi og svoleiðis?" Pabbi getur ekki annað en hlegið, „en Kata mín," segir hann, „þessi saga er einmitt um mann sem tekur saklaust fólk og setur þau í fangelsi, hann var vondur maður, en svo gerðist svolítið", pabbi brosir enn. "Er það, eru svoleiðis sögur í Biblíunni?" Bæði Kata og Stebbi eru alveg rasandi hissa. Já,pabbi er alveg viss um það og þá man Stebbi eftir einni og hrópar upp; „ Sagan um Davíð og Golíat, hún er úr Biblíunni," hann hoppar um gólfin og er virkilega glaður yfir því að vita betur en stelpurnar. „Einmitt," segir pabbi, „við þurfum að rannsaka hvað stendur í Biblíunni svo við lærum að þekkja Guð." „Rannsaka" hlær Fanney: „eigum við kannski að verða spæjarar eða hvað, Biblíuspæjarar?" Stebbi er líka farinn að hlæja: „En fyndið, Biblíu- Bamctblaðið — spæjararnir það erum við." „Jæja, Biblíuspæjararnir mínir" segir pabbi og sest í uppáhaldsstólinn sinn, „eigum við að rannsaka dularfullt mál í dag?" „Já gerum það," segja krakk- arnir og setjast öll niður til að hlusta á sögu um löggur og bófa. „Það var einu sinni fyrir mörgum árum, rétt eftir að Jesús dó og reis upp frá dauðum," byrjar pabbi söguna: „Heilagur Andi hafði fyllt lærisveinana krafti og þeir sögðu öllum sem hlusta vildu frá Frelsaranum Jesú. Það voru menn þarna í Jerúsalem sem voru ekkert alltof hrifnir af þessu og það hófust ofsóknir gegn þeim sem trúðu á Jesú." „Ofsóknir, hvað er það nú eiginlega?,, spyr Kata og pabbi útskýrir það: „Það var hættulegt að vera kristinn og þeir sem sögðu öðrum frá trú sinni gátu lent í miklum vand- ræðum. Maðurinn sem ég ætla að segja ykkur frá hét Sál og við getum lesið urn hann í Postulasögunni. Sál var einn af þeim sem ofsótti kristna menn í Jerúsalem." „Váá hann hefur verið vondur, algjör bófi." segir Stebbi, honum líst vel á þessa sögu. „Já," segir pabbi, „hann þekkti Guð ekki, en áfram nú með söguna: Sál hafði fengið leyfi til að fara í önnur þorp og borgir til að elta þá uppi sem trúðu á Jesú. Hann ætlaði ekki að láta neinn komast undan, konur, börn né menn. Hugsið ykkur bara þegar hann ruddist inn í hús og handtók fólkið." Augun hans Stebba eru næstum því eins stór og undirskálar þegar hann heyrir þetta: „það væri svakalegt ef einhver kæmi og setti okkur í fangelsi bara út af því að við trúum á Guð, alveg sama þó við hefðum ekkert gert af okkur." Pabbi er alveg sammála: „Já það er ekki réttlátt en svona var það nú samt hjá Sál og svona er það víða í heiminum. Sál trúði því ekki að Jesús væri frelsarinn sem allir Gyðingar biðu eftir." Fanney er óþolinmóð og vill heyra meira; „ Hvað gerðist svo?" „Sál ákvað að fara frá Jerúsalem til Damaskus og halda ofsóknunum áfram þar," segir pabbi, „Dam- askus var borg þó nokkuð langt í burtu en Sál setti það ekki fyrir sig. Eg er viss um að það hefur frést til bæjarins að Sál væri á leiðinni og hinir kristnu hafa örugglega allir verið að biðja Guð um hjálp." „Hvernig hjálpaði Guð þeim pabbi, segðu okkur það?" Kata veit að Guð svarar bænum og þess vegna spyr hún. Pabbi segir þeim það, hann les það beint úr Biblíunni sinni: „En pegar hann var á ferð sinni komin í nánd við Damaskus, leiftraði skyndilega Ijós af himni. Hann féll til jarðar og heyrði rödd sem sagði: Sál, Sál ----------------17

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.