Barnablaðið - 01.02.1995, Page 20
HEIMi'ÓKN í K.K.Í.H- >,
\
%
Ég fór í heimsókn til krakkanna í
s
Hvítasunnukirkjunni á Akureyri um daginn. Eg
varð heldur en ekki hissa þegar ég sá að það voru
ekki bara heill hellingur af krökkum í salnum
heldur líka fjölmargir fullorðnir. Þeir höfðu allir
nóg að gera við að undirbúa stundina og sú sem
stjórnar þessu öllu var á hlaupum við að setja upp
brúðuleikhúsið og finna fjársjóðskistuna en ég gat
þó fengið hana til að segja okkur svolítið frá
í vetur höfum við
verið með barnastarfið í
kirkjunni á föstudögum
kl. 17,15 og hefur
þátttakan verið mjög
góð, mætingin hefur
verið að meðaltali um
það bil 75 börn. Við
köllum okkur K.K.S.H.
sem stendur fyrir
„Kristileg krakka-
samtök Hvítasunnu-
kirkjunnar'"
Hver stund er einn
og hálfur klukkutími og
við erum öll saman í
K.K.S.H. Hún heitir
Snjólaug og hún leyfði
mér að taka nokkrar
myndir til að sýna ykkur
enn betur hvað það er
gaman í barnastarfinu í
Hvítasunnukirkjunni á
Akureyri:
Bctmablaðið
20