Barnablaðið - 01.02.1995, Page 23

Barnablaðið - 01.02.1995, Page 23
Eftir rigningu rofar til og ég sé þína miklu dýrð, eftir rigningu. Þá er glaðlegt og betri fegurð þess hef ég aldrei séð, og þá er ég glöð. Þá endar lóa út í móa. Eins og þetta væri kannski ævintýraland. Þess vegna skal ég segja, að þið hafið leyft mér að syngja fallegt lag. Sandra Rebekka 7 ára I lokin Núna ert þú sjálfsagt búin að lesa Barnablaðið upp til agna og þess vegna ætla ég að segja þér að næsta blað kemur út í apríl og verður með páskaefni. Þá færðu að hitta Spæa aftur og við heimsækjum Biblíuspæjar- ana. Biblíufræðslan verður á sínum stað og Hnoðri segir okkur frá öðru dýri sem við getum lært af. Ég ætla að hafa eina eða tvær smásögur með í blaðinu og vonandi verðið þið búin að senda mér mikið af sögum, Ijóðum, vitnisburðum og myndum sem þið hafið gert, eða brandara, leiki, gátur eða þrautir. Kristinn sögumaður segir ykkur aðra sögu og við kíkjum í ruslatunnuna. Ég var næstum því búin að gleyma einu, við heimsækjum krakkana í Hvítasunnu- kirkjunni á ísafirði í næsta blaði og sjáum hvað þau eru að gera og auðvitað margt fleira. Bless þangað til í apríl, Lísa Barnablaðið er gefið út af Hvítasunnukirkjunni á Akureyri, pósthólf 208 602 Akureyri, sími 96-12220, myndsendir 96-12231. Ritstjóri: Anna Elísa, ábyrgðarmaður: Vörður Traustason, gjaldkeri: Ásdís Jóhannsdóttir og útlitshönnuður: Arnar Yngvason. Þetta tölublað er gefið út í 2000 eintökum. Um prentvinnslu sér Ásprent hf. Blaðið er prentað á umhverfisvænan pappír. Barnablaðið kemur út sex sinnum á ári (í febrúar, apríl, júní, ágúst, október og desember). Blaðið er selt í áskrift á 1.850 kr. (1.750 kr. fyrir þá sem greiða með kreditkorti) og í lausasölu á 350 kr. Áskriftartímabil er frá janúar til desember sama ár. Uppsögn miðast við áramót. Vinsamlega tilkynnið ef breyting verður á heimilisfangi eða áskrift. Barnablaðið hefur komið út síðan 1938 Bamablaðið 23

x

Barnablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Barnablaðið
https://timarit.is/publication/670

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.