Alþýðumaðurinn - 26.03.1987, Blaðsíða 8
ALÞÝÐUMAÐURINN
Útgefandi: Alþýðuflokksfélag Akureyrar
Blaöstjórn:
Oskar Alfreösson,
Haraldur Helgason,
Jórunn Sæmundsdóttir
*7hr
WtiflVPL* '
AkT^n>Sa, «
^ LJótel KE^ * >s..
J etórfundar a í^rt+ir S mSlOVjr
Anna á NorBudandi
á 'ista A^Buflo r . fundinum.
Allir velkomnir.
Valgerður
Sverris-
dóttir og
fjölda-
samtökin
í fyrsta tölublaði fyrsta ár-
gangs af blaðinu „Framsókn",
sem Kjördæmissamband fram-
sóknarmanna í Norðurlandi
eystra hefur hafið útgáfu á,
vitna ýmsir um sérlegt ágæti
Valgerðar Sverrisdóttur, fall-
kandidats „frammara“. Mesta
athygli okkar hér á Alþýðu-
manninum vöktu ummæli
Svövu Aradóttur og Kristínar
Jónsdóttur:
„Við viljum sjá á
Alþingi íslendinga
konu, sem hefur heitið
að stuðla að því og
bæta lagalega, stjórn-
málalega og atvinnu-
lega stöðu kvenna. En
það gerði Valgerður
Sverrisdóttir, þegar
hún ákvað að gerast
félagi í Zontaklúbbn-
um Þórunni hyrnu.“
Það er svona, þegar konur
og karlar fara að starfa í fjölda-
samtökum á borð við Zonta-
klúbba, þá er aldrei friður eftir
það, vegtyllurnar og ábyrgðar-
störfin koma á færibandi.
En spyrja má þær Svövu og
Kristínu: hafur blessuð konan
nokkuð að gera á þing? Eru
ekki næg verkefni í Zontakl-
úbbnum?
Valgerður Sverrisdóttir:
KEA og konur
í „Frainsókn" Infrullublaði fram-
sóknarmanna um Valgerði Sverr-
isdóttur, sem dreift var í hús í
þessari viku, var mikið gumað af
þátttöku Valgerðar í stjórn
KEA. Valgerður mun hafa átt
setu í stjórn KEA frá 1981. Þegar
ónefndur áttaði sig á þessari
löngu setu frúarinnar í stjórn
KEA þá varð honum að orði:
„Ég er svo aldeilis hissa, frúin frá
Lómatjörn, sem gumar svo mikið
af því að vera málsvari kvenna!
Þrátt fyrir að ég þykist fylgjast
nokkuð með í atvinnulífi og
víðar, þá minnist ég þess ekki að
hlutur kvenna í ábyrgðarstöðum í
KEA hafi aukist á þessum
árum.“
Umsóknareyðublöð Húsnæðisstjórnar:
„Að sjálfsögðu hjá
lóðarskrárritara!“
í smáklausu annars staðar í blað-
inu er sagt frá raunum ungs sam-
býlisfólks í sambandi við glötuð
réttindi til húsnæðismálastjórn-
arláns eftir eins árs náms- og
vinnudvöl í Danmörku. - Þegar
aðstandendur þeirra fóru á stúf-
ana til þess að athuga með rétt-
indi til láns, kom fyrir spaugilegt
atvik. Eins og við er að búast er
engin skrifstofa þessarar mætu
stofnunar nema í Reykjavík.
Þangað var hringt og spurst fyrir
um málin og skýringar fengust.
En áður en í Ijós kom, að réttindi
þeirra voru niður fallin, var skot-
ið inn spurningu um, hvort eng-
inn umboðsmaður væri fyrir
stofnunina á Akurcyri - og
svarið: „Jú, að sjálfsögðu fást
umsóknareyðublöð á Akureyri.“
En hvar? „Nú, að sjálfsögðu hjá
lóðaskrárritara!!!“ - Ja, að
manni skyldi detta til hugar að
spyrja!
Frá upphafí hefur kjarni
jafnaðarstefnunnar verið
hugsjón, sú hugsjón, að
það sé réttur sérhvers
manns að lifa lífí, sem
samrýmist sjálfsvirðingu
hans, - lífí, sem geri hon-
um kleift að vera frjáls,
þroska hæfíleika sína og
njóta réttmæts árangurs af
iðju sinni. Sá, sem vill
keppa að þessu marki og
telur, að því verði ekki
náð nema með skipulegu
samstarfí og samhjálp, er
jafnaðarmaður.
—★—
Jafnaðarstefnan stuðlar
að jafnrétti allra manna til
mannréttinda og
mannsæmandi lífs. Og
ungt fólk sem aðhyllist
þessar hugsjónir myndar
með sér félög sem nefnd
eru Félög ungra jafnað-
armanna.
-★-
I þjóðfélagi kommúnisma
eða sameignarstefnu þjón-
ar maðurinn ríkinu. Mark-
mið jafnaðarstefnu er að
ríkið þjóni manninum.
—★—
Jafnaðarstefnan miðar að
réttlátu samfélagi og segir
ranglæti, auðhyggju, sér-
hyggju og forréttindum
stríð á hendur. Jafnaðar-
stefnan hefur frelsi, jafn-
rétti og bræðralag að leið-
arljósi.
—★—
Jafnaðarstefnan er stefna
unga fólksins sem hugsar
og vill breyta þjóðfélaginu
í áttina til jafnaðar og rétt-
lætis.
—★—
Enginn maður á fremur að
þurfa að óttast um afkomu
sína en frelsi sitt eða
öryggi. Að öðrum kosti
lifír hann ekki lífí, sem
samrýmist sjálfsvirðingu, í
þeim skilningi, sem jafn-
aðarmann leggja í það
orð.
—★—
Félag ungra jafnaðar-
manna vill hvetja allt ungt
fólk sem hefur trú á lýð-
ræði og félagshyggju að
taka þátt í starfsemi FUJ
og baráttu jafnaðarmanna
fyrir þjóðfélagi frelsis,
jafnréttis og bræðralags.