Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1886, Blaðsíða 8

Sameiningin - 01.03.1886, Blaðsíða 8
—4 breyta.st, hvernig sem veröldin veltist. Sú nauðsyn er ávallt hin sama, hvar sem maSrinn er staddr, í œsku eöa elli, í fátœkt eSa auðæfum, í upphefð eSa niðrlæging, á frelsisöld og ófrelsisöld, á upplýsingartíma og fáfrœðistíma, á Islandi eða í Ameríku eSa í hverju öðru landi heimsins sem vera skal. Og hver er sú nauð- syn ? þaS er aS sitja viS fœtr frelsara síns eins og María forSum og hlýSa með samskonar hug og hún á kenning hans. Eitt er nauSsynlegt, ávallt jafn-nauSsynlegt, aS hafa ljós hins kristilega sáluhjálparorSs til að lýsa sálu sinni við hvert fótmál í lífinu og dauðanum. Kristindómrinn er hin eina, sanna, ávallt óbreytan- lega nauSsyn mannanna. A frelsisöld og í frelsislandi er lífsnauðsyn á þcim anda inn í hjörtu mannanna, sem leiðir þá til þess aS nota frelsiS rétt, sér og öðrum til blessunar. A ófrelsisöld og í ófrelsislandi er lífs- nauSsyn á þeim anda, sem gefr mönnum kraft til þess aS bera sina ófrelsisfjötra meS þolinmœSi, svo lengi sem þá verSr aS bera. A upplýsingaröld er með öllu ómissanda sii speki, sem kennir mönnum aS beina upplýsingunni og menntaninni í rétta átt, að hún ekki verSi að villuljósi, er kemr mönnum út á kaldan klaka. A öld fáfrreSis og vanþekkingar þarf á þeirri speki að halda fyrir livert mannsbarn, sem sýnir mönnum guð og himininn, þó að handaverlc hans hér niðri sé aS mestu leyti óþekkt og órann- sökuS. þegar auSr og upphefS gleSr mannshjartaS, þá þarf aS heyrast rödd, sem segir : “Einber hégómi—þetta er allt saman hégómi”. Og þegar maðrinn er staddr í fátœkt og niSrlæging, þá er honum fremröllu þörf á rödd, himneskri, almáttugri, kærleiks- fullri, sem við hann segir : “KomiS til mín, allir þér, sem erviS- ið og þunga eruS hlaSnir ; eg vil gefa ySr hvíld ”. Kristindómrinn er þessi andi, þessi speki, þessi rödd. Sá, sem sitr við fretr frelsara síns, auSmjúkr, iðrandi, trúaSr, biðjandi, og hlýðir kenning hans, hann öSlast þennan anda, eignast þessa speki, heyrir þessa rödd. “Hver sem drekkr af þessu vatni”, sagði Jesus við konuna samverslcu viS Jakobs brunn hjá Sykar (Jóh. 4, 13), “hann mun þyrsta aftr ; en hinn, sem drekkr af því vatni, er eg mun gefa, mun að eilífu ekki þyrsta, heldr mun það vatn, sem eg mun gefa honum, verSa í honum aS lind, uppsprett- andi til eilífs lífs”.—“Gef mér þetta vatn”, sagði konan, svo mig þyrsti ekki framar”. 0, aS hvert eitt mannsbarn þjóSar vorrar heima og hér í drcifingunni stœði við brunninn, um leiS og þaS er

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.