Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.03.1886, Blaðsíða 15

Sameiningin - 01.03.1886, Blaðsíða 15
—11— og þær koina fram í 187. sálmi Davíðs (“I Babylon við vötnin •ströng- vér sátum fullir sorgar” o. .s. frv.). Og Jeremías, sem er svo fullr af harmi, þá er hann boðar sínu eigin fólki hinn á dynjanda dóm, minnir ósjálfrátt á endrlausnarann meira en 6 öldum síðar grátanda yfir Jerúsalem, hennar syndum, hennar vantrri, hennar yfirvofandi óförum með hin harmsfullu orð í huganum: “'En þér hafið eklci viljað!”. I 3. lexíu moetum vér Jeremíasi aftr. Flokkr einn af hjarðmannafólki arabislcu, er hafzt hafði við austanvert við landið helga, Rekabs-niðjar, hefir hrokkið undan her Nebúkad- nesars Babylonar-konungs vestr yfir Jórdan til Jerúsalems, til að liafa þar frið í hinni víggirtu höfuðborg Júdaríkis meðan hætt- an stœði yfir. Yfirhöfðingi þessa flokks, meira en hálfri 3. öld áðr á dögum Jehú konungs í Israelsríki (2. Kg. 10, 15), var Jónadab, og hann hafði lagt þessum ættflokk sínum það fyrir, að þeir slcyldi aldrei vín drekka, enga akryrkju stunda og ekki búa f föstum bústöðum. Honum stóð stuggr af hinni svo kölluðu menntan borgalífsins. Og Rekabs-niðjar héldu trúlega boðorð hans. Á þetta bendir' Jeremías fólki sínu í drottins nafni. Rekabs-niðjar hlýða samvizkusamlegaboði Jónadabs, hyggi- legu, þeim blessunarríku, en þó að eins mannlegu boði; en söfn- uðr guðs í Júda skeytir ekkert sáluhjálparboðskap drottins! En hefir ekki söfnuðr drottins enn stór-mikið að læra af Rek- abs-niðjum til forna ? Ertú, maðr, trúr drottni þínum ? Heldrðu trúnaðarheitið, sem þú vannst frelsara þínum í œsku ? Og er ekki ástœða til að setja drylckjuskapnum á þeim stöðvum, sem ]ni stendr, einhverjar skorður ? Er ekki bindindi enn nauðsyn- legt ? Kemr ekk borgalífið eða hin öfuga hlið menntunarinn- ar á þessari öld mörgum á kaldan klaka ?—það er satt: boð Jónadabs til Relcabs-niðja var ekki í guðlegu umboði gefið, en þó af því að þeir héldu það, þá leggr drottinn blessan yfir flokk- inn. Og hann leggr enn blessan sína yfir þá, sem hrífa sjálfa sig og aðra út úr siðaspilling aldarinnar. 4. lexía er sagan um það, hvernig eyðileggingin dundi yfir Júda á dögum Sedekía konungs. Hin helga borg Jerúsalem er brotin niðr, fólkið herleitt til Babylonar, konungrinn blindaðr og sonum hans slátrað fyrir augum hans. Nebúkadnesar Ba- bylonar-konungr með lífvarðarforingja sínum og hinum lieiðnu

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.