Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.01.1888, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.01.1888, Blaðsíða 3
—163- sjálfa dreyrnt þennan draura rétt nýlega. Hann rís upp við þessa fyrstu guösþjónustusamkomu vora á þessum stað eins og æfintýrið gamla segir, að fuglinn fönix hafi risið upp úr ösku sinni, bráðlifandi og með endrnýjuðu evangelisku afli. þegar Jakob vaknaði eftir að hann hafði dreyrnt draum sinn til enda, þá sagði hann meðal annars: „Hér er guðs hús“. Hann vissi, að það, sem hann hafði séð og heyrt í draumnum, var sönn saga. Guð hafði, mót allri von, ef tekið var tillifc til þess, hvern- Í£ hinar andlegu ástœður Jakobs höfðu verið að undan förnu, O O 7 virkilega látið hann sjá sig og virkilega við hann talað í sínum kærleika á þessum stað. Menn liefir eflaust dreymt misjafnt á liðinni tíð fyrir framgangi kirkjumála vorra á þessum stöðv- um. Eg á ekki við, hvað menn hefir dreymt í svefni. heldr við það, sem menn hefir dreymt vakandi. Mér er nær að halda, að marga hafi á þann hátt helzt dreymt um það, að þessi lút- erslci söfnuðr Islendinga í Winnipeg gæti aldrei þrifizt, að öll vor barátta fyrir framtíðarlífi hans myndi verða árangrslaus, að það væri svo þungt bjarg, setn hér væri í andlegum efnum verið að bisa við að velta, að þaö myndi verða oss eilífr Sís- yfusar-steinn, sem blyti að velta niðr eftir öllum götum jafn- óðum og búið væri að koma honum rétt upp urtdir fjallsbrún. Og eg geng út frá því nærri því sem sjálfsögöu, að suma dreymi þetta enn. En hvað sem öllum slíkutn draumutn iíðr, og hvort sem nokkurn hefir dreyrnt urn þaö eða ekki, að guð væri með oss í hirtni kirkjulegu baráttu vorri hér, þá geta nú allir vakandi og með opnum augum sagt: „Hér er guðs hús“. Hinn íslenzki söfnuðr og hinn íslenzki þjóðfiokkr yfir höfuð í Winnipeg ltefir nú fengið hús yfir sig, þar sem hann getr sameiginlega átt samfundi með drottni sínum, sameiginlega not- ið guðlegrar sabbatshvíldar, sámeiginlega virt fyrir sér sitt tnesta gleðiefni—heintsins óutnrœðilega gleðiefrti, sem forðum bar fyrir Jakob í drautni hans. það er líkt ástatt fyrir fólki voru, sem tekr sig upp og flytr burt frá íslandi hingað til þessa lands, heiman að frá öllu kunnugu og mörgu kæru inn í nærri því allt ókunnugt hér, eins og fyrir Jakob, þegar hann lagði fyrst á stað rit í heiminn burt frá sínu œsku-aðsetri. Eg hefi þegar að nokkru bent á, hverjar hugsanir að líkindum voru ríkastar hjá honum, þegar hann lagði sig til hvíldar á þessu feröalagi

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.