Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.09.1893, Blaðsíða 6

Sameiningin - 01.09.1893, Blaðsíða 6
■102— blessunar, heldr teljum oss hafa bæði rétt og skyldu hér eftir eins og aö undanfornu til þess aö berjast á móti hinum vmsu afvegaleiðandi röddum, scm þar láta til sín beyra, jafnframt því eftir megni rne'ð þakklátri viðrkenning að halda öllu því upp að augum kirkjulýðs vors hér, sem þar heima er vel og heiðar- lega gjört. í þessum tilgangi viljum vér af öllu hjarta halda snman við broeðr vora í kirkjunni heima. Og vér fáum eigi skilið, að barátta vor gegn fylking vantrúarinnar, sem bréfrit- arinn talar um, þuríi að verða nokkuð áhrifaminni og afflausari fyrir það, þótt vér jafnframt stöndum upp til mótmæla gcgn því, sem vér sjáum eða heyrum rangt og skaðsamlegt í hópi voriM eigin trúarbrœðra hvar sem vera skal. En svo verðr líka ávallt að muna eftir því, að vér liöfum hér volduga trúai'brœðr í landinu, er vér lífsnauðsyn- lega verðum að fylgjast með og að miklu leyti að halda saman við. það er liin mikla lúterska kirkja annarra þjóða í Ameríku, sem brunar hér fram með langtum meira vexti liið ytra en nokkur önnur prótestantisk trúardeild. Að trúarlífið þar sé yHr höfuð að tala bæði framkvætndarsamara og heilbrigðara en í kirkju íslands nú á tírr.um, um það efast líklega fáir, sem að rnun þekkja til á báðum stöðunum. Yantrúarmennirnir ís- lenzku hér hafa einatt minnt 'oss á það, að oss muni svo bezt þoka áfram í þessu landi, að vér einblínum ekki á Island, heldr lítum til hérlendra manna og lærum sem fyrst að verða eins og þeir. Vér tökum þessari ámiuning, að því undanteknu auðvitað, eins og þegar er tekið frarn, að vér leyfum oss að líta til íslands og hafa gætur á, hverju þar fer frarn, og köstum ekki neinu því, er nokkurs er virði i föður- og móður-arfi vorurn. Ut frá þess- ari sannfœrirg viljum vér, þá er tími er til þess kominn, setja liinn fyrirhu"aða skóla kirkjufélags vors á stofn og yfir höfuð lialda uppi öllum þeim kirkjulegu fyrirtœkjum, sem vér teljunr oss nauðsynleg, samkvæmt dœrni allra lúterskra kirkjudeilda hér í álfu. Svo skyldugt álítum vér oss eigi að halda saman við kirkjuna á íslandi eins og það af lútersku kirkjunni í þess- ari lieimsálfu, sem stendr oss næst. þegar kirkjunni heima ber á rnilli og hinni lútersku kirkju við lilið vora hér í landinu út af lærdómi trúarinnar eða kristindómsstefnunni yfir höfuð, þá húumst vér við að fylgja kirkjunni hér og eiga þar af leiöanda á

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.