Sameiningin - 01.09.1893, Page 8
—104—
tiska lífinu a íslandi nú á þessum síðasta tíma, meiri, ljótari,
hræðilegri nú en nokkurn tíma áðr í sögu þjóðarinnar, þá eru
ekki heldr sannanir til fyrir tilveru nokkurs skapaðs hlutar.
Og þó að þetta uppblástrs-merki sé nú líklega ljótast af öllu, þá fer
því fjarri, að það standi alveg eitt uppi. það er svo skammt síðan
minnzt hefir vea’ið í blöðunum á ofbeldistilraun Reykvíkinganna
sumra, menntuðu mannanna einmitt, eftir því sem kallað er, til
þess að svifta einstaka menn málfrelsi, og líka svo skammt síð-
an tíðindin komu um anarkista-leyfið, sem Hokkr manna í
einni byggð Islands tók sér til að refsa einu sínu yfirvaldi upp
á sína vísu, að lesendr vorir geta víst ekki verið búnir að
gleyma þessu. Svo það eru sannarlega til mörg merki þess; að
megn “uppblástr“ er nú í liinum pólitiska frelsisakri heima á
íslandi, og því fór fjarri, að vér gætmn bent á neitt eins stór-
kostlegt merki hins andlega uppblástrsins í þjóðlííi íslands, þá
er fyrirlestr vor varð til, eins og nú er fram komið og öllum oss
Islendingum hér vestan hafs sýnilegt.—Vér töluðum líka eitt
sinn um það, er vér nefndum ídenzkan nihilwmus. Lagafrum-
varpið góöa, sem þegar var um getið, bendir nú óneitanlega á
það, að íslenzki nihilismusinn sé að blása sig upp til að verða
meira en lítið rússneskr Rússum er við brugðið fyrir sína
harðstjórn og sína þi'ælahlekki. En önnur eins lög til að binda
vesalings alþýðuna fasta við eymda-bœlið bennar heima eins og
frumvarpið þetta, sem í ár skapaðist á alþingi íslendinga, liafa
aldrei sést í Rússlandi. Mennóníta-nýlendurnar í Manitoba og
víöar liér vestra minna vel á þennan sannleik. þá er stríðið
síðasta stóð yfir milli Rússa og Tyrkja fyrir einum 16 árum,
var Mennónítum, sem á Rússiandi bjuggu, eins og öðrum þegnurn
Riissakeisara boðið að ganga í herþjónustu og berjast gegn
óvinum hins rússneska ríkis1 ). En til |tess voru þeir ófáanlegir
fyrir þá sök, að trúarbrögð þeirra banna þeiin alla hermennsku,
er þeir á likan hált og Kvekarar skoða sem synd. Hvað skyldi
nú hafa verið gjört við þessa vesalings Mennóníta, hefði löggjaf-
arnir íslenzku, sem í ár gjörðu þetta frægðarverk á alþingi,
setið sem ráðgjafar í kring um keisarann í Pétrsborg ? Yér
skulum láta alla ráða þá gátu sjálfa. Til þess þarf ekki mikla
)] Fyrir 1871 voru |)sir undanjjegnir her)jjónustu í Rússlandi, en )>aö ár
misstu |:eir Jiann undan])águ-rétt að stjórnarboÖi.