Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1894, Blaðsíða 2

Sameiningin - 01.04.1894, Blaðsíða 2
—18— Ó, komum, biðjum hann, sem þau börnin að sér tók, að blessa oss og leiða’ í stríði hörðu; svo lærum líka’ að stafa guðs blessuðu bólc, sem blasir við himni á og jörðu. Má reiða sig- á guðspjallasöguna ? Eftir dr. F. Godet í Neuchatel í Sveiss, Framhald. þó að vér nú, að því er þetta síðasta atriði snertir, létum vera að taka tillit til þess, hve algjörlega ósennilegt það er, að maðr sá, er „blés ógnunum og manndrápi gegn lærisveinum drottins", haíi getað haft aðra eins sýn, þá er það þó óneitan- legt, að Páll í 1. Kor. 15 telr þá opinberan drottins, sem hér er um að rceða, allt annars eðlis en hinar ýmsu sýnir, er hann annarsstaðar minnist á í bréfum sínum og líka koma fyrir áðr í Gjörðabók postulanna. I þessum 15. kap. fyrra bréfsins til Korinþumanna, sem vér aftr og aftr höfum vísað til, er talað um líkamlega upprisu hinna trúuðu, og postulinn styðr þá kenn- ing sína með því, að frelsarinn eftir upprisu sína haíi birzt post- ulunum og auk þess fjölda annarra lærisveinaog þar með einnig sjálfum postulanum. Yæri þar að eins um sálarsjón að rœða, þá gæti það með engu móti verið sönnun fyrir líkamlegri upprisu Krists, né heldr verið til styrkingar þeirri von, að vér eigum líka að rísa upp. þessi opinberan, sem Páll byggir köllun sína til postuladœmisins á, er eftir skoðan hans allt annars eðlis en það, þegar drottinn síðar vitraðist honum í draumum eða and- legum sjónum. þar sem hann nú setr opinberanir þær, er post- ularnir segja frá, í röð með þeirri opinberan, er hann sjálfr varð fyrir, þá er auðsætt, að hann telr þessar opinberanir lík- amlegar, eins og kirkjan hefir líka æfinlega gjört. það þarf ekki heldr annað en bera frásögurnar um sýnir, t. a. m. þá er Pétr varð frá sér numinn (Pg. 10, 10 o. s. frv.), saman við sögu guðspjallanna um upprisu drottins, til þess að öllum verði skiljanlegr hinn mikli opinberanamunr, sem hér er um rœða. Ekki dugir heldr að halda því fram eins og Strauss gjörir, að það sé ekki fyr en löngu eftir dauða Jesú og eftir að lærisvein- arnir voru komnir til Galílea, að þessar opinberanir hafi komið

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.