Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1894, Síða 8

Sameiningin - 01.04.1894, Síða 8
-24- guðspjall eins ög postullegt frumrit, alveg á sama hátfc og máður- kirkjan, serri þeir aS nokkru leyfci eða algjörlega höfðu slitið sig frá. j>að yrði erviðast að gjöra grein fyrir því, að ritið er eins og það er, svo framarlega sem það væri „öekta.“ þeir, sem ekki teija Jóhannes postula höfund ]>ess, kannast þó við, að það sé eitthvert hið mesta og göfugasta verk, sem mannlegr andi hefir framleitt. þeir kannast allir við, að aldrei hafi nokkrum rithöfundi tekizfc að lýsa sögulegum athurðum eða eðiiseinkunn- um einstakra manna með meiri nákvæmui en þar er gjörfc. Og enn fremr játa þeir, að enginn haíi enn tekið höfundi rifcs þessa frarn í heilagri djúpskyggni, einföldu og látlausu orðalagi eða háum hugsunum. Höfundrinn hlýtr að sjálfsögðu að hafa ver- ið einhver einkennilegasti og háfleygasti andi, sem mannkyns- sagan veit af að segja; og svo ætti þessi stjarna af fyrstu stœrð að hafa tindrað á söguhimni annarrar aldar án þess nokkur maðr tœki eftir henni og án þess að hún léti nokkrar aðrar menjar eftir sig en þetta eina rit? Yér þekkjum fremstu menn- ina og beztu rithöfundana á tímabilinu næst á eftir postu'ia- öldimi: Klemens, Jústínus píslarvott, Polykarp, Ignatíus, o. fl, Vér eigum að nokkruleyti rit þeirra enn þáog metum þau mik- ils. En eins og pvramídarnir á Egyptalandi gnæfa upp yflr kofa fellak-annsL, sem búa þar á sama svæðinu, eins rís hið um- rœdda guðspjall langt um hærra en rit þessara manna, sem, enda þótt í bezta tilgangi sé rituð, öll eru fremr laklega af hendi leyst. Er hugsanlegt, að annað eins há-gáfað mikilmenni hefði ekki tekið neinn þátt í hinni áköfu andlegu baráttu sinnar tíðar, hefði alla æfi haldið áfram að vera hinn mikli óþekkti andi mitfc á meðal allra kirkjufeðranna og safnaðanna, sem voru í kringum hann, og að svo hefði rifc hans — enginn veifc hve nær eða hvernig — allt í einu kotnið fram úr myrkrinu og eftir samkomulagi rnilli biskupa og safnaða verið eignað Jóhannesi posfcula? Slík ímyndan er þvert á móti öllum sögulegum líkindum. Hvað er það þá, sem fœrt er fram til stuðnings þessari ímyndan, að hið uinrœdda guðspjall sé ekki eftir Jóhannes? það er sagfc, að Jóhannes, sem samkvæmt því, er frú sé skýrfc í 2. kap. Galafcabréfsins, hafi andspænis Páli varið gildi hins

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.