Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.06.1894, Side 15

Sameiningin - 01.06.1894, Side 15
—C3— sín úr einni borg í aSra. Menn láta fréttaíleygi bera hugsanír sínar út heirnsendanna á milli á minna en einni sekúndu. Menn gjöra sér veg í gegnum fjöllin og láta blágrftishamrana hrökkva undan sér nálega fyrirhafnarlaust. Slík feikna-öfl í ríki náttúrunnar, sem mennirnir þelckja og geta nú, miklu meir en nokkurn tíma áðr í mannkynssögunni, látiS þjóna sér ! Hví skyldi menn eigi undrast þau? Hví skyldi mönnum ekki finn- ast mikið til um það, hve volduga þjóna þessi öld heíir í þcim fengið til að hrinda mannkynssögunni áfram ? En eitt afl er þó til, sem meira og dásamlegra er öllum þessum undra-öflum náttúrunnar. Kaldr og ömurlegr fimbulvetr hefir lagzt yfir mannssálina, og hún sér ekkert fram undan sér annað en hugg- unarlaust dauðamyrkr. Er þá nokkur náttúrukraftr til, sem geti látið þann andlega vetr hætta og bjarta og blíða hvítasunnu, himneska dýrðarsól, upprenna i myrkrunum, svo að gaddrinn, sem nfstir lijartað bráðni, og inndæl sumarblóm taki að sprctta yzt út við heimslcaut ? — Nci, enginn náttúrukraftr megnar neitt þvílíkt. En það er til afl, sem vér köllum náðarafl, yíir- náttúrlcgt, himneslct, guðlegt afl, og það megnar að koma þessu til leiðar. það er sama sem kærleikr Krists. þetta er aflið mikla, sem verlcanda er í liinu kristna mannlífl, aflið, sem meiri undrum hcfir komið til leiðar en öll náttúruöflin til samans. það er stundum sagt xiti á íslandi: Yæri búið að flytja þessa klalcabundnu og hróstugu ey noklcrum mælistigum lengra suðr i höf, þá breyttist brátt allr hagr landsins; það kœmi hlý- indi, jöklarnir bráðnuðu, hafísinn hyrfi. Og allt yrði, yfir höfuð að tala, öðru vísi en er. En það lcemr engum til hugar, að slíkt geti orðiö. Menn vita, að enginn náttúrukraftr getr flutt ísland úr stað. Enginn náttúrukraftr fæst til að brœða jölculinn á íslandi. En andlega jökulinn, sem kreppir að þjóð vorri livort heldr er hér í landi eöa úti á íslandi, má brœða, en það vcrðr með engu öðru en kærleiksafli kristindómsins. Á hinni fyrstu kristnu hvítasunnu bráðnuöu klalcabundin hjörtu 3000 manna. Og við það varö hinn fyrsti kristni söfnuðr til. Kristilog kirkja hóf þar sína sigrgöngu. Hvaðan kom aflið, scm bræddi h jörtun við það tœkifœri? það kom frá því oröi, scm einn af lærisveinum drottins flutti mönnum eftir að hann ásamt þeim hinum var orðinn fullr

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.