Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1895, Blaðsíða 3

Sameiningin - 01.04.1895, Blaðsíða 3
-19- kvölJmáltíðina, af drottni sjálfum; svo þýðing sú, scm hann í áminnztum vitnisburði sínum leggr í þetta lieilaga sakrament, útskýring sú, sem hann þar gefr á innsetningaror'ðunum, er að sjálfsögðu frá frelsaranum sjálfum og um aldr og æfi bindandi fyrir kristnina. það er því ekki minusti vafi á því, að vér eigum að skilja orðin, sem til vor koma í Jesú nafni um leið og vér meðtökum brauðið og vínið í altarissakramentinu: „þetta er minn líkami“ og „þetta er kaleikr hins nýja sáttmála í rnínu blóði“, nákvæmlega eins og þau hljóða, — enginn vafl á því, að Jesús vill, að þau skuli æfinlega af öllum hans lærisveinum tekin í bókstaflegum skilningi. Með öðrum orðum; Frelsarinn hefir tilsett þennan helgidóm, kvöldmáltíðina, til þess með henni að gjöra lærisveina sína hluttakandi í líkama sínum og blóði. En frelsarinn sagði líka um leið og hann innsetti kvöld- máltíðar-sakramentið: „Gjörið þetta í mína minning“. þessi orð eru líka partr af innsetningarorðunum, og auðvitað getr það eklci verið meining hans, að þessum hluta innsetningarorðanna skuli nokkurn tírna stungið undir stól í kristninni. það hcfir stundum í sögu kirkjunnar verið lögð langtum of mikil, ein- strengingsleg og öfug áherzla á þennan liluta innsetningarorð- anna. Menn hafa út af þessu: „Gjörið það í mtna minning" leitazt við að fá þcim skilningi slegið föstum, að kvöldmáltíðar- sakramentið væri ekkert annað en líldngarfull athöfn, fyrir- skipuð kristnum mönnum af Je3Ú til þess að eins að lialda á lofti í söfnuðinum hátíðlegri endrminnig um hann á því augna- bliki, er hann forðum hóf sína píslarsögu og gekk út í dauð- ann fyrir synd mannkynsins. Og í samrœmi við þessa útlegg- ing sína liafa menn þá sagt, að það væri að eins á andlegan hátt að Jesús í kvöldmáltíðinni gæfi mönnum líkama sinn og hlóð sitt, þvert á móti orðanna hljóðan og þvert á móti skilningi þeim, er postulinn leggr í þau, þegar hann vitnar, að menn verði virkilega með kvöldmáltíðar-sakramentinu hluttakandi í líkama Krists og blóði. En þó að orðin: „Gjörið þetta í mína minning“ hafi veriö svona einstrenginglega og svona óhœfilega útlögð, þá dugir ekki fyrir því að slá yfir þau stryki 1 trúarmeðvitund kristins safnaðar. Ef vér fyrir þessa sök ættutn að stinga þessum parti innsetningarorðanna undir stól, ]tá mættum vér cius vel stiuga hverju einasta orði kristiudiims-opinberuuarinn-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.