Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1895, Blaðsíða 11

Sameiningin - 01.12.1895, Blaðsíða 11
—155 hræðilega stúrt atriSi í mannlífinu er böl og kvöl, neyð og sorg, svo stórt atriði, að hin jaröneska gleöin er ekki nema eins og ofr-litlir hvarflandi sólskinsblettir, eða eins og eyjar, sem standa upp úr hafinu. Og oft má maðr til með að hætta við lofsönginn sinn yfir llfinu í miðju kafi. því allt í einu, áðr en maðr veit nokkuð af, óma sorgarraddir í eyrum inanns, ef ekki frá djúpi manns eigin sálar, þá samt frá óteljandi sársaukans mönnum nær og fjær í öllum áttum tilverunnar, — sorgarraddir, sem koma með sama hoðskapinn eins og hið alkunna viðkvæði úr hinum gömlu islenzku vikivaka-ljóðum : „Mínar eru sorg- irnar þungar sem blý “, ellegar þetta enn þá ininnisstceðara frá Páli postula : „því vér vitum, að öll skepnan til samans stynr og liefir fœðingarhríðir allt til þessa“ (Róm.8,22). þér hafið, margir yðar, margoft stunið þungan út af mótlæti því, sem lagzt hefir yfir yðr í lífinu. Og sumir st}7nja vafalaust út af einhverju huldu böli, sem enginn sér nema hinn eini. Og þér hafið marg- oft átt kost á að héyra mótlætis- og neyðar-stunurnar frá sorg- arinnar börnum, sem hafa orðið yðr samferða í lífinu. En þyngstu og sárustu stunurnar, sem til eru, fara yfir höfuð að tala frain hjá' möniium. það eru stunur þær, sem koma frá hinni bundnu guðs mynd í mannssálunum í fangelsi syndar- innar. Mennirnir margir, sem eiga þá guðs mynd, heyra ekki einu sinni sjálfir þær stunur, andvörp sinnar eigin fjötruðu guðs myndar. ])eir ganga með hjarta sitt forhert í syndinni og vita ekki af því, hvað guðs mynd'n sjálfra þeirra tekr út. En hugsið nú til drottins Jesú, þegar hann kemr prédikandi fram fyrir inannheiminn. Ut yfir allt hið mikla úthaf mannlífsbölsins liorfði hann á þeirri stund. Og hann sá óteljandi menn nær og f ær vera stadda þar í hafsnauð. Og hann heyrði allar stun- urnar mannssilnanna, sem voru þar í voðanum, líka þeirra, sem ekkert vissu af þvi, að þeir væri í hættu, og þess vegna ekki sjálfír hej^rðu stunur sinnar eigin guðs m^mdar. Sjón haus var svo fullkomin og eyra iians var svo næmt fyrir þá sök, að andi drottins, hinn heilagi guðs andi, var yfir honum, eins og svo skýrt er tekið fram í upphafi textans, sem hann tók sér úr spá- dómsbók Esajasar og heimfœrði bókstaflega í hverjn einasta at- riði upp á sj ílfan sig. Og þegar þér hugsið enn þá frekar út í þenn- an sama texta, þá haldið því föstu, að það bárust til eyrna frelsar-

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.