Sameiningin - 01.09.1899, Síða 11
107
málgagni General Councils, og þar að auki prófessór í
heimspeki við Pennsylvania-háskólann. Hann hafði mjög
fjölbreyttar gáfur, og var lærdómsmaður mikill. Hann haföi
á sínum tíma orð fyrir að vera lærðasti maður í Philadelphia.
I io ár var hann forseti General Councils. Frá þeim tíma
að Generl Council myndaðist, barðist hann í ræðum og rit-
um, í prestaskólanum og utan hans, eindregið fyrir því, að
halda því sem einkennir vorn kristindóm sem lúterskan.
Hann er talinn að vera hinn mesti ensk-lúterski guðfræðingur,
sem lúterska kirkjan hefur eignast. Hin merkasta bók, sem
liggur eftir hann, og um leið hin merkasta lúterska bók, sem
rituð hefur verið á ensku máli, er ,,The Conservative Re-
formation", og hefir hún inni að halda ritgjörðir sem lýsa
hinu sanna ágæti lútersku kirkjunnar, og útskýringar á og
sannanir fyrir því, sem hún leggur sérstaklega áherzlu á.
það var verk þessara manna að grafa upp lúterska gullið,
sem gleymst hafði, og sýna það kirkjunni. það á heima um
starf dr. Schmuckers, ekki síður en dr. Krauths.
Um leið og lútersk trúar-atriði höfðu fallið í gleymskn,
hvarf mikið af lúterskum siðvenjum og tíðareglum. Að inn-
leiða hið síðara var starf dr. Schmuckers. það var mikið
verk. það þurfti að rannsaka ógrynni af hinum fyrstu, þýzku
guðsþjónustuformnm. Með mikilli alúð vann hann að þessu
í mörg ár. Hann var álitinn bezt að sér í þeirri grein af öll-
um samtíðarmönnum sínum í Ameríku,og þó lengra væri leit-
að. Guðsþjónustuform General Councils eru að miklu
leyti verk hans, og ,,kirkjubók“ þess félags, með sálmum,
guðsþjónustuformum og mörgu öðru nytsömu, er líklega
meira honum að þakka en nokkrum öðrum manni. Hann
átti líka mikinn þátt í því, að vekja tilfinningu hjá mönnum í
hinni ensk-lútersku kirkju fyrir fögrum, sann-lúterskum guðs-
þjónustum, ekki að eins í anda, heldur einnig að formi til.
Starf þessara tveggja manna leiddi ómetanlega blessun
yfir General Council, og yfir lútersku kirkjuna í Bandaríkj-
unum í heild sinni. (Framh.)
OOO-Í1-