Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.11.1899, Blaðsíða 7

Sameiningin - 01.11.1899, Blaðsíða 7
hann sjálfr, hinn krossfesti og upprisni drottinn Jesús Kristr, haldandi á þeim með öllu því, sem þeir áttu, í almáttugri frelsarahendi. Vinir mínir, brœör og systr í þessum söfnuöi ! Hafið þér ekki aftr og aftr á liðinni æfitíð haft merki þess, að frelsarinn var með yðr ? að ósýnilegr leiðtogi var með yðr, segjandi yðr til vegar og sýnandi yðr, hvar lífsblessan yðar lá ? Og hafið þér ekki meðal annars á þessum mánuðum, sem liðnir eru síðan eg átti hér tal við yðr síðast, að minnsta kosti öðru hverju kennt návistar hans ? Hefir daglega lífið yðar ekki yðr vitanlega að einhverju leyti verið samtengt við hann, snortið af anda hans persónulega, styrkt af orði hins eilífa lífs, sem frá honum er út gengið ? Hafið þér ekki við og við reynt það, að hjörtu yðar komust við á líkan hátt og læri- sveinanna til forna, þá er hinn ókunni samferðamaðr talaði við þá og útlagði fyrir þeim ritningarnar ? þér hafið heyrt rödd hans alveg víst í orði því, sem yðr hefir verið boðað hér í kirkjunni meðan eg var burtu. Hann hefir verið hjá yðr við guðsþjónustufundi yðar hér á þessum stað. En hann var hjá yðr líka utan kirkju á heimilunum og við hin veraldlegu hversdagsstörf. Ef störfin hafa heppnazt, þá var það hann, sem lét þau heppnast, úthellti yfir þau blessan sinni. Að því leyti, sem þér nutuð gleði, saklausrar gleði, þá var hann með yðr. Hann gaf yðr gleðina. Var sjálfr þungamiðjan í þeirri gleði. Og að því leyti, sem þér hafið kennt hryggðar, heilagr- ar hryggðar út af syndinni eða mótlætinu, sjálfra yðar eða annarra, þá hefir hann líka þar verið með yðr, — takandi á hjarta yðar svo, að það beinlínis tók til að brenna. Örlög lífs yðar margra hafa stundum komið hart og sárt við yðr — vafalaust líka nú í næstliðinni tíð, nú meðan eg var yðr fjar- lægr að líkamanum til. En í rauninni var það hann, sem þá var til yðar komandi og minnti yðr gegnum sársaukann á það, sem dýrmætast er af öllu, sæluefnið eilífa, sem er hann sjálfr. þetta vitnar áreiðanlega samvizka hvers einstaks í safnaðar- hópnum, hin guðlega undirrödd í hjörtum einstaklinganna. Og ef þér að eins sinnið þeirri undirrödd, þá veit eg með vissu, að þér getið ekki annað en sagt hátíðlegt og hjartanlegt já og

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.