Sameiningin - 01.11.1899, Síða 9
137
meðyðr!“ Hann vill nú vera með oss öllum, heilsar svo
milt og blítt upp á oss alla, býðr oss öllum frið, hinn himn-
eska blessaða frið, sem heimrinn getr ekki gefið. þessu má
enginn gleyma. Og á þetta skal nú öll áherzlan lögð. Öll-
um tilheyrir þessi kveðja. Öllum undantekningarlaust er
boðinn þessi friðr, án alls tillits til þess, hvernig að undan-
förnu hefir verið búið um hnútana til tryggingar hinu persónu-
lega lífi. þá, sem hafa verið honum nálægir, og þá, sem hafa
verið honum fjarlægir, kallar hann á alla eins, og býðr þeim
sinn frið, — frelsan frá syndinni fyrir blóð friðþægingarinnar
og samfara þeirri frelsan þann frið hjartans, sem œðri er öll-
um mannlegum skilningi. Friði guðs er fyrir Jesúm Krist út-
hellt yfir þessa syndugu jörð. Heilögum friði eilífs lífs inn-
blásið í hjörtu einstaklinganna allra, sem meðtaka hinn kross-
festa og upprisna guðs son eins og lausnara sinn, leiðtoga á
æfiförinni, drottin síns lífs. þarna er ráðgáta lífsins leyst.
þarna er hinn frelsandi brennipunktr í lífi einstaklinganna
allra, sem mynda mannkynssöguna. Og þarna er jafnframt
miðpunktr kristindómsopinberunarinnar. Eins og það líka
var miðpunktr í lofsöng hinna himnesku herskara á jólanótt-
inni, þegar frelsarinn fœddist: ,,Dýrð sé guði í upphæðum,
friðr á jörðu og velþóknan yfir mönnunum!" Hann kom í
heiminn, úr hinni himnesku dýrð niðr á land syndanna, sorg-
anna og kvalanna, til þess að útvega mönnum þennan frið.
Og ósýnilegr er hann eftir líkamlega burtför sína hér hjá oss,
gengr við hlið vora og býðr hverjú mannsbarni þennan frið.
Náð sé með yðr og friðr frá guði föður fyrir drottin vorn Jes-
úm Krist! þannig hljóðar hið postullega kveðjuorð marg-
endrtekið. Og þessi kveðja fylgir kristindómsorðinu hvert
sem það berst út um hinar jarðnesku mannabyggðir. Og
hvar sem syndug mannssál gengr frelsaranum á hönd og tekr
að lifa með honum og í honum, þá verðr kveðjan þessi milda
og blessaða að áhrínsorði.
Ó, kærir tilheyrendr ! þér eruð allir ferðamenn, allir
meira eða minna þreyttir ferðamenn, sumir dauðþreyttir, svo
liggr við, að þér hnígið örmagna niðr til jarðar, sumir, ef til