Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.12.1902, Síða 5

Sameiningin - 01.12.1902, Síða 5
sá, sem bíðr þar á víöavangi, á hélaöri jöröinni, til þess í bvti inorgun þennan að taka á rnóti pílagrímunum,hraðar því tíöa- gjörð sinni sem mest hann má ; og óðar en hann hefir lýst blessaninni, sem endar með lofsöngsorðum englanna, fiýta allir sér aftr inn í bœinn til þess að taka þátt í prósessíu bisk- upanna og prestanna. Allir klerkarnir ganga í skráutbúningi samskonar og sá var, er prestar Israels bártr á hátíðum.. Þeg- ar patríarkinn í Jerúsalem kemr með föruneyti sfnu, glæsileg- um, fjölmennum hópi presta, sem halda á stórum kertastikum og dýrindis-fánum, tekr prósessían sig upp. Síðan heldr hún áfram beint til Latínu-kapellunnar og inn um aðal-dyrnar, sem eru svo þröngar, að ekki kemst þar inn nenia einn rnaðr í senn, og svo lágar, aö allir verða að beygja sig, jafnvel þeir, sem allra lægstir eru vexti. Svo sem við mátti búast liggja sérstök söguleg rök að því, aö dyr þessar eru svona lágar. Kapelludyrnar voru fyrr meir bæti háar og breiðar. Kn er Tyrkir til þess að særa trúartilfinningar kristinna ntanna tóku að ríða þar inn á heStbaki, var dyrunum breytt og þær gjörð- ar svona lágar og þröngar, til þess að helgidómrinn yrði ekki framvegis vanhelgaðr á jiennan hátt. Sagan segir, að hin stóra kirkja, er stendr á torginu, hafi verið reist árið 340 af Konstantín mikla, fyrsta kristna keisara rómverska ríkisins. En líklegra þykir þó, að kirkjan sé ekki eldri en frá árinu 550, enda er til önnur sögusögn, er heldr jiví fram. Það er eiginlega stór klasi af húsum, með mjög óskipulegu byggingarsniði, sem tengd hafa verið saman, svo að úr því hefir oröiö ein heild, og líkist þetta helzt kastala- virki. I Jjyrping Jressari er Maríukirkjan, hin latínska og hin gríska, og enn fremr hin ermlenzku klaustr. Hið innra er kirkjan mikilfeng og tignarleg—,,basilíka“ hennar með hin- um stórskornu korinzku súlum. Fjórar raðir slíkra súlna mynda fimrn ,,skip“ helgidómsins, og á veggjunum má sjá leifar af fögrum litsteinamyndum, er hafa átt að sýna ýmsa atburði í biblíusögunni og kirkjusögunni. En á margan hátt eru þó gangrúm kirkjunnar vanhelguð. All-títt má sjá þar börn á hlaupum til og frá, svo og börn, sem eru að fijúgast á; eu hins vegar liggja búandkarlar einatt sofandi við súlurn-

x

Sameiningin

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.