Sameiningin - 01.04.1903, Side 3
19
enda liggi alls engin yfirnáttúrleg opinberan til grundvallar
fyrir guöstrú gamla testamentisins, beldr sé hún í fyrstu upp-
runnin hjá Babyloníu-mönnum og hafi þaðan komiö til
Hebrea.
En skömmu síðar flutti annar hálærðr maðr í fornfrœð-
um Assýra og Babyloníu-manna, dr. Hilprecht frá Philadel-
phia, fyrirlestr í Leipzig á Þýzkalandi um náskylt efni; og þó
að sá fyrirlestr væri í rauninni alls ekki stýlaðr á móti hinum
vísindalegu kenningum dr.s Delitzsch, þá komst hann þar þó,
að því er trúarbrögðin snertir, að algjörlega gagnstœðri niðr-
stöðu. Hilprecht er upphaflega lærisveinn hins eldra De-
litzsch, heyrir lútersku kirkjunni til, var áðr einn af kennurum
háskólans í Philadelphia, og þaðan var hann fyrir fjórtán ár-
um gjörðr út til að standa fyrir útgreftri og rannsóknum eld-
gamalla borgarústa austr í Mesopotamíu. Hefir það fyrir-
tœki verið ákaflega ervitt og haft afar mikinn kostnað í för
með sér. En árangrinn er stórkostlegr, og almennt er Hil-
precht nú talinn skara fram úr öllum samtíðarmönnum sínum
að þekking og skarpskyggni í þeim sérstöku austrlenzku vísind-
um, sem hann hefir lagt stund á. Hann er og hefir lengi verið
með í ritstjórn Philadelphia-blaðsins ,,Sunday School Times“.
Fjöldi ritgjörða eftir hann hafa þar birzt á seinni árum um
rannsóknir þær, sem gjörðar hafa verið í löndum þeim, er
helzt snerta hina helgu sögu biblíunnar. Og nú fyrir fám
vikum er bók ein mikil um allar þær rannsóknir á nítjándu
öldinni komin út í Philadelphia. Aöal-höfundr þess ritverks
er Hilprecht, en samverkamenn hans hafa þar verið þessir
fjórir lærðu Þjóðverjar: Benzinger (hann ritar um rannsókn-
irnar í Gyðingalandi), Hommel (Arabíu), jensen (rannsóknir,
er snerta sögu Hetíta) og Steindorff (Egyptaland). Hinn
enski titill bókarinnar er: ,,Explorations in Bible Lands dur-
ing the Nineteenth Century“. Hún er gefin út af Holman &
Co. og kostar 3 doll.
En út af fyrirlestri Hilprechts, þeim er hann flutti í Leip-
zig, komst þýzka tímaritið ,,Der alte Glaube“ svo að orði:
,,Svo háar vonir sem vér gjörðum oss fyrirfram um Hil-
precht, þá gjörði hann þó betr en vér bjuggumst við. Þótt