Sameiningin

Árgangur

Sameiningin - 01.04.1903, Blaðsíða 4

Sameiningin - 01.04.1903, Blaðsíða 4
20 hann hafi komiö svo miklu til leiöar á svæði sinna sérstöku vísindalegu rannsókna, þá talaði hann þó látlaust og blátt áfram, með virðulegri gætni, sem laus var við allan sérgœð- ingshátt og sjálfsþótta; en það, sem vér einkum viljum leggja áherzlu á, var það, að út úr orðum hans skein glóandi trúar- áhugi, sem þegar í stað dró að sér hjörtu áheyrendanna. Það þurfti ekkert smávegis áræði til þess að tala í anda Esajasar og Jeremíasar frammi fyrir mönnum þeim, er alls engan trú- argrundvöll kannast við. En það einmitt gjörði þó Hilprecht. í inngangsorðum erindis síns gjörði hann þá játning, að þrátt fyrir allt, sem hinir hálærðu meistarar í gamla testamentis frœðum héldi fram, hefði hann aldrei séð svo sterkar sannanir fyrir fullkomnum og óhagganlegum áreiðanlegleik spádóm- anna þar eins og í rústunum í elzta menntalandi heimsins, héraðinu milda milli fljótanna Evfrat og Tígris, sem vér, nú- tíðarinnar fólk, hljótum að kalla ,,ey hinna dánu manna“. En ekki að eins inngangr fyrirlestrsins, heldr líka hann allr, varpaði fyllilega ljósi yfir boðskap spámananna í ritningunni. [í spádómsbók Esajasar—14, 12—lesum vér:] ,,Hvernig ert þú af himni ofan fallin, þú hin fagra morgunstjarna? Hvern- ig ert þú til jarðar niðr hrunin, þú, sem varla virtir þjóðirnar viðlits ? ‘ ‘ Þessi dómsorð spámannsins (yfir Babylon) komu sem bergmál út úr rústardyngjum þeim, sem sýndar voru af fyrirlesaranum bæði með orðum og myndum. En enn þá meira áræði þurfti þó til þess að vitna á móti hinum gust- miklu heilabrotum annars eins manns og Frederics Delitzsch og með því að mana fram á móti sér ofsa allra vísindalegra rannsóknaranda í Þýzkalandi. En ekki heldr hér hikaði Hil- precht sér við að láta í Ijósi fasta og óhagganlega sannfœring sína frammi fyrir hinum fjölmenna áheyrendaskara. ,Þar sem nýlega hefir tilraun gjörð verið‘ — sagði hann —, til þess að leiða hina hreinu eingyðistrú ísraels út úr babylonskum uppsprettum, þá er eg til þess knúðr að lýsa yfir því, sam- kvæmt fjórtán ára rannsóknum mínum á fleygletrs-rúnamáli Babyloníumanna, að það er með öllu ómögulegt. Trú hins útvalda lýðs drottins hljóðar svo: Heyr, ísrael: drottinn'vor guð er sá einasti guð. Og sú trú gat aldrei komið frá hinu

x

Sameiningin

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.