Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1903, Page 6

Sameiningin - 01.04.1903, Page 6
22 kœmi þeim ekkert við. í tölu slíkra manna eru eigi að eins hinir opinberu, svörnu óvinir kristindómsins, heldr og margir þeir, sem þykjast kristnir og telja sig í lærisveina- flokki Jesú Krists. En svo óskiljanlegt sem þetta viröist vera, þá er það þó, þegar vel er að gætt, svo auðskilið. Það stafar að sumu leyti af kæruleysi og hugsunarleysi, en að sumu leyti af hinni skaðlegu tilhneiging manna til að draga sjálfa sig á tálar. En sérhver alvarlega hugsandi maðr ætti sannarlega ekki að láta þessar hindranir verða þröskuld á vegi sínum, heldr ætti hann að setja sér Jesúm Krist sem bezt fyrir sjónir, virða fyrir sér kenning hans, störf og líferni, til þess svo að geta gefið sjálíum sér sem áreiðanlegast svar upp á spurninguna: Hvað virðist þér um Krist? — þá spurning, sem hver hugsandi maðr hlýtr að skoða sem hina þýðingar- mestu lífsspurning, er hann fær lagt fyrir sjálfan sig. Yms af orðum Jesú eru líka þess eðlis, að engum getr staðið á sama um, hvort þau eru sönn eða ekki. Eg vil nefna önnur eins orð eins og þessi: ,,Eg em vegrinn, sannleikrinn og lífið; enginn kemr til föðursins nema fyr.ir mig. “ Öllum þeim, sem ekki trúa á Jesúm sem drottin sinn og herra, væri auðvitað illa við það, ef sá vegr, sem hann hefir vísað á, væri eini vegrinn til himins. Og ekki væri þeim betr við það, að Jesús væri sannleikrinn og lífið, þannig, að dauðinn yrði hlutskifti allra þeirra, sem ekki vildi aðhyllast hann. Og þótt það, ef ti' vill, þyki mikið sagt, þá get eg vel ímyndað mér, að margir vildi gefa mikið til, að þessi orð væri lygi. En þess er vel að gæta, að sannleikr þessara orða stendr og fellr engan veginn með því.hvort þau eru geðfelld eða ógeðfelld hin- um náttúrlegu tilfinningum vorum, heldr stendr hann og fellr með því, hvort Jesús hefir haft vald til að tala þau eða ekki. En slíkt vald er óhugsanda að hann hafi haft nema því að eins, að hann jafnframt því, sem hann var sannr maðr, hafi einnig verið sannr guð. En hér stöndum vér frammi fyrir hinum mikilvæga leyndardómi guðhræðslunnar, eins og post- ulinn Páll kemst að orði, er hann segir: ,,Vafalaust er þessi leyndardómr guðrœkninnar mikilvægr: Guð birtist í hold- inu, er réttlættr af andanum, sén af englunum, boðaðr meðal

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.