Sameiningin - 01.04.1903, Page 7
23
heiðinna þjóða, meötekinn í trúnni í heiminum, upp numinn í
dýrS“ (i. Tím.3, 16). Sannarlega er allt þetta leyndardómr.
Allr kristindómrinn er leyndardómr, óskiljanlegt, dásamlegt
kraftaverk. Vér höfum, ef til vill, aldrei veitt þessu full-
komna eftirtekt; og stafar þaS af því, aS vér vorum svo ungir,
þegar þetta kraftaverk varS fyrst á vegi vorum. Vér vorum
ekki gamlir, þegar mamma okkar sagSi oss fyrst frá hinum
himinborna jólagesti, hvernig fœðing hans hafi orSiS gjör-
völlu mannkyninu til blessunar. Vér trúSum þá á hann af
því aS vér vissum, aS hún sagöi oss ekki annaö en það, sem
satt var. En svo inndæl og dýrmæt sem barnatrúin er, þá á
það þó 'viö um hana, sem Páll postuli segir á einum staö:
,,Þegar eg var barn, talaöi eg sem barn.var lyndr eins og barn
og hugsaði sem barn; en þegar eg varð fullorðinn, lagði eg af
bernskuna“ (i. Kor. 13, 11). Ef trúin á guðdóm Jesú Krists
á að verða persónuleg eign vor, sannarlegt lífsafi fyrir oss, þá
megum vér eigi grundvalla hana á því, sem oss hefir verið
sagt, eða vér höfum lært. Hún verör þá að grundvallast á eig-
in sannfœring og persónulegri lífsreynslu. Hin mikla spurn-
ing, sem hver og einn þarf því aö leggja fyrir sig, er þessi:
Hvers vegna trúi eg á Jesúm Krist? Þessari spurning vil eg
nú, fyrir mitt leyti, leitast við að svara. Skal eg engan draga
á því, að svar mitt verðr á þessa leið: Eg trúi á Jesúm
Krist af því að eg hefi bæði ytri og innri vitnisburði, sem eru
mér fullnœgjandi trygging fyrir því, að hann er sá, sem hann
sagðist vera : guðs eingetinn sonr, ímynd veru hans og ljómi
dýrðar hans (Hebr. 1, 3).
Eg vil þá fyrst snúa mér að hinum ytri vitnisburðum, og
leitast við að sýna fram á, hvernig allt það, sem vér vitum
um Jesúm Krist, orð hans, störf og líferni, staðfestir guðdóm
hans. Það gefr að skilja, að eg hlýt hér að styðjast við heim-
ildarrit; og þau heimildarrit, sem þá fyrst verða fyrir mér,
eru hin fjögur guðspjöll nýja testamentisins, með því líka þau
eru hin einu áreiðanlegu heimildarrit, þegar rœða er um Jesúm
Krist, kenning hans, störf og líferni. Reyndar hafa ýmsir á
síðari tímum reynt að vefengja áreiðanleik þessara heimild-
arrita vorra, og því hefði, ef til vill, verið réttara af mér a.ð