Sameiningin

Volume

Sameiningin - 01.04.1903, Page 8

Sameiningin - 01.04.1903, Page 8
24 byrja á því að leiða rök að ritvissu og áreiðanlegleik guð- guðspjallanna. En þetta myndi verða allt of langt mál, og því hefi eg leitt það hjá mér. Eg læt mér nœgja að benda öllum þeim.sem eru vantrúaðir á áreiðanlegleik guðspjallanna, á hina svo kölluðu ,,hærri biblíu-kritík'1. Slíkar rannsóknir hafa staðið yfir á síðustu tímum, og standa yfir enn í dag. Nú er gamla testamentið í hreinsunareldinum, en nýja testa- mentið er flogið út úr honum að öllu leyti með ósviðnar fjaðrir. Þessar biblíurannsóknir hafa, að því er nýja testamentið snertir, verið framkvæmdar af óvinum kristindómsins í því skyni, að ryðja honum úr vegi; en þegar vér nú hugsum um, hver niðrstaðan hefir orðið, þá koma oss ósjálfrátt í hug orð Jósefs til brœðra sinna: ,,Þér ætluðuð að gjöra mér illt, en guð sneri því til góðs“ (i. Mós. 50, 20). Vér sjáum einnig í biblíurannsóknum þessum guðs forsjónar hönd, er lætr óvini kristindómsins verða verkfœri í sinni hendi til þess að styrkja vini kristindómsins í trúnni á sannleik hans. En þar sem nú hin vísindalega rannsókn hefir engan veginn raskað áreið- anlegleik guðspjallanna, þá megum vér treysta því, að sú Jesú-mynd, sem þau draga upp fyrir oss, er veruleikanum samkvæm. Vér höfum eflaust allir veitt því eftirtekt, að þeg- ar málarar eða myndasmiðir búa til myndir af Jesú, þá ein- kenna þeir þær vanalega frá öðrum myndum með geislabaug umhverfis höfuðið. Sá geislabaugr er tákn hinnar guðdóm- legu geisladýrðar, sem ljómar frá persónu Jesú, hvort heldr vér virðum fyrir oss orð hans eða líferni. Það, sem sérstaklega vekr undrun vora og aödáun, þegar vér virðum fyrir oss orð Jesú, er sá öruggleiki, sem hvervetna hvílir yfir þeim. Það er aldrei hik á honum, og hann er aldrei í minnsta vafa um það, sem hann segir. Hvort heldr hann framsetr grundvallarlög guðs ríkis fyrir tiltilheyrendr sfna, eða útlistar leyndardóma þess fyrir lærisveinum sínum, eða ver sig fyrir árásum óvina sinna, þá hvílir sami öruggleiki yfir orðum hans. Kennslu-aðferð hans er nokkuð sérstök að því leyti, sem hann notar svo mikið samlíkingar og dœmisög- ur. En allar samlíkingar hans eru undr fagrar og vel valdar, og margar af dœmisögum hans eru, að dómi mestu vísinda- manna, fegrstu perlurnar í heimsbókmenntunum.

x

Sameiningin

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.