Sameiningin - 01.04.1903, Síða 15
3i
—Nýkomiö er út ágætt kver—Exodus — til skýringar 2.
bók Mósesar eítir dr. R. F. Weidner, forstöðumann hins lút-
erska prestaskóla í Chicago, gefið út í þeim bœ af Fleming
H. Revell Company. Eftir sama höfund eru áðr út komin
nokkur rit líkrar tegundar til skýringar bókum nýja testament-
isins, einnig 1. Mósesbókar. Hinn sameiginlegi titill rita þess-
ara er Studies in the Book. Seinna eiga að koma skýringar
annarra gamla testamentis rita.
Bœklingrinn, sem kemr með skýringar dr. Weidners á 2.
bók Mósesar, er einkar hentugt rit fyrir sunnudagsskóla-
kennara. Verðið er 50 cts.
Dr. Weidner aðhyllist vitanlega ekki staðhœfingar hinnar
niðrrífandi og neitandi biblíu-,kritíkar‘. í formála kversins,
sem þegar er um getið, segir hann meðal annars: „Margar
kenningar, sem ýmsir þessara niðrrífandi biblíu-rannsakenda
halda fram, gæti virzt eðlilegar í munni þeirra, sem neita til-
veru persónulegs guðs, eða því, að guð geti opinberað sjálfan
sig, eða þeirra, sem staðhcefa, að vér getum engri vissu náð
um neitt, hvorki mannlegt né guðlegt, eða þeirra, sem hafa
það fyrir satt, að guð opinberi sig að eins á náttúrlegan hátt,
gegn um skynsemina og náttúruna;—en þegar þessum rök-
semdum er beitt af tnönnum, sem játa trú á yfirnáttúrlega op-
inberan og sannleikann eins og hann er opinberaðr. fyrir
Jesúm Krist og í honum, þá lætr það undarlega í eyrum. “
Önnur bók stœrri, sem heitir Theologia, eftir sama höf-
und er einnig mjög nýlega komin út frá Fleming H. Revell
útgáfu-félaginu. Þar er fram settr lærdómrinn um guð sam-
kvæmt biblíunni og nákvæmlega sýnt, hvernig hann var skil-
inn í fornkirkjunni, á reformazíónartíðinni, og hvernig merkir
guðfrœðingar hafi skilið hann allt fram á þennan dag. Bók
þessi er einkar hentug fyrir guðfrœðisnemendr, enda aðallega
þeim ætluð.
Það liggja fieiri ritverk eftir dr. Weidner en flesta guö-
frœðinga lútersku kirkjunnar í Ameríku.
Fríkirkjusöfnuðrinn í Reykjavík hefir nú komið sér upp
kirkju, sem kvað kosta nálægt tuttugu þúsundum króna—auk
organs, er pantað hefir verið frá útlöndum og á að kosta
þús. kr. Þetta mun vera einhver mesta kirkja á íslandi.
Rúmar um þúsund manns. Hún var vígð 22. Febrúar af séra
Ólafi Ólafssyni, áðr presti í Arnarbœli, nú ritstjóra ,,Fjallkon-
unnar“. Hann á að verða prestr safnaðar þessa framvegis í
stað séra Lárusar Halldórssonar, sem hefir þjónað söfnuðin-
um frá því hann myndaðist haustið 1899. ,,í ráði kvað vera“