Sameiningin - 01.12.1956, Qupperneq 23
Sameiningin
69
gjofum okkar, sem sækjum þetta kirkjuþing, kveðjur og
blessunaróskir frá Fyrsta lúterska söfnuði í Winnipeg.
Við, Winnipegbúar, höfum sérstakan áhuga fyrir þessum
söfnuði og kirkju ykkar hér. Margir ykkar voruð fyrr meir
meðlimir Fyrsta lúterska safnaðar í Winnipeg, og við
minnumst þess einnig, er prestur ykkar þjónaði hjá okkur
árlangt fyrir nokkru síðan. Persónulega á ég margar ánægju-
legar endurminningar frá viðkynningu minni við séra Eirík
og fjölskyldu hans, og mér þykir vænt um að geta sagt að
mnátta okkar hefir farið vaxandi með árunum.
Ég vil nota þetta tækifæri til að óska ykkur og presti
ykkar til hamingju með það mikla þrekvirki, sem þið hafið
leyst af hendi, með byggingu þessarar glæsilegu kirkju.
Er hér um afrek að ræða, sem þið megið vera stolt af; og á
þessari merku hátíð safnaðarins hefir Fyrsti lúterski söfn-
uður í Winnipeg falið mér að færa yður þessa Biblíu að
gjöf. Áletrunin á forsíðu bókarinnar er sem hér segir:
„Gjöf frá Fyrstu lútersku kirkju í Winnipeg til íslenzku
lútersku kirkjunnar í Vancouver, í tilefni af vígslu kirkj-
unnar 8. júlí 1956.“
_______________©_______________
Ljósastjakar gefnir Vancouver
kirkju
5. september s.l. afhenti Mrs. E. A. Nygaard, forseti
kvenfélagsins í íslenzka söfnuðinum í Vancouver (W. A.)
presti safnaðarins, séra Eiríki, og forseta hans, Hálfdáni
ræðismanni Thorlaksson mjög vandaða og fagra kertastjaka
í heiðursskyni við séra Rúnólf Marteinsson og frú Ingunni.
Fórust frú Nygaard orð á þessa leið við það tækifæri:
„Dr. Rúnólfur Marteinsson myndaði íslenzka lúterska
söfnuðinn hér í Vancouver í marzmánuði 1944. Seint í ágúst-
mánuði það ár var kvenfélagið stofnað, og var frú Ingunn
Marteinsson kosin heiðursforseti þess. 1 fyrsta fundargjörn-
ingi félagsins, frá 9. maí 1945 stendur þetta skráð. „Forseti
tilkynnti að þetta yrði síðasti fundurinn, sem Mrs. Marteins-
son yrði viðstödd, áður en þau hjón flytjast til Winnipeg.