Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1957, Side 5

Sameiningin - 01.12.1957, Side 5
Sameiningin 3 heldur en nokkur pílagrímsför, er að hverfa þangað í anda og hugleiða, hvað þar er fyrir oss skeð, hvaða blessun þaðan er út yfir heiminn runnin, og hvaða þakkarfórnir vér eigum þar fram að bera. Guð veiti oss hjálp sína til að skoða jötuna í Betlehem í ljósi jólahátíðarinnar. Ó, dýrð sé þér í hæstum hæðum, er hingað komst á jörð- Á meðan lifir líf í æðum, þig lofar öll þín hjörð. Á meðan tungan má sig hræra, á meðan hjartað nokkuð kann sig bæra. Hvert andartak, hvert æðarslag guðs engla syngi dýrðarlag. 1 ljósi jólanna verður jatan í Betlehem að konungshöll guðlegrar hátignar. Hvernig má þetta ske? Hvernig getur hið lága hreysi, óhæfilegt fyrir bústað handa mönnum, aðeins nýtilegt handa skynlausum skepnum, hvernig getur það verið konungshöll guðlegrar hátignar? Það, sem fátækt er og lítilsvirt í heiminum, það útvelur guð helzt til þess að opinbera á því sína dýrð. Á eyðimörku opinberaðist hann forðum Moses, Abraham og Elíasi, svo kaus hann nú einnig hina litlu og fámennu Betlehem, þessa myrku nætur- stund, þetta lága hreysi, til að opinbera í sína dýrð; þar sjáum vér nú skína hans trúfesti, kærleika og almætti. Þegar hirðarnir komu til hússins, þá fundu þeir þar allt eins og englarnir höfðu sagt. Þar megum vér fyrst og fremst líta Drottins trúfesti. Það, sem englarnir höfðu boðað, það er spámennirnir höfðu fyrir sagt, það sem forfeðrunum hafði verið fyrirheitið, það sem mannkynið hafði þráð um langan aldur. Það var nú uppfyllt. Það kom á þeirri stundu, er enginn hafði ætlað, það skeði á þeim stað, er enginn hafði leitað þess, það rættist með þeim hætti, er engan hafði grunað. En það kom — það skeði, það rættist. Guð er eigi eins og maðurinn að hann ljúgi, né eins og mannsins börn að hann sjái sig um hönd. Trúfastur er Drottinn. Aldrei hefur hann það dýrðlegar sýnt, en með sendingu sonar síns. í hvert skipti sem jól koma eftir jólaföstu, í hvert skipti sem vér sjáum í anda frelsarann í jötunni, er það á ný til vor kallað, að Guð er trúr. Og þó að hann dragi hjálpina,

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.