Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.12.1957, Side 10

Sameiningin - 01.12.1957, Side 10
8 Sameiningin hjarta sínu, og tók það aftur fram á síðari stundum ævinnar, skoðaði það og íhugaði til þess er henni skildust betur Guðs ráðsályktanir með hana og son hennar, og mannkynið allt. Gjör þú sem hún. Varpa eigi frá þér með sjálfbyrgingsskap því sem þér kann að virðast torskilið í hinni helgu sögu. Geym það heldur í hjarta þínu, veltu því fyrir þér og hug- leiddu það. Ef þú hefur eitthvað heyrt í Guðs orði á þessari hátíð, sem snortið hefur hjarta þitt gleðilega, þá gleym því eigi aftur, heldur geym það sem dýrgrip og tak það fram þér til gleði og huggunar þegar þér liggur á, þótt síðar verði. Og ef þú hefur eitthvað heyrt í Guðs orði, sem sært hefur hjarta þitt, þá hristu það ei af þér, heldur geym það og lát það hafa áhrif á breytni þína. Þá mun Guðs orð verða lifandi frækorn í hjarta þínu sem dafnar þar og ber himinblóm og ávexti til eilífs lífs. Þá munum vér einnig verða þess um komin að vitna um frelsarann og útbreiða hans ríki, svo sem hirðarnir fóru og kunngjörðu öðrum það sem þeir höfðu heyrt og séð. Menn geta vitnað um Krist með fleiru en orðum, menn geta það einnig með breytninni- Eftirdæmið er einhver hin öflugasta prédikun, bæði til ills og góðs. Þó að vér getum eigi vitnað um frelsarann, eða útbreitt hans ríki með andagift postulanna, þá er oss öllum gefið færi á því, í hverri stöðu sem vér erum. Þó að þú getir það eigi í fjöl- menni meðal margra, þá getur þú það á heimili þínu meðal konu og barna og heimamanna. Látum það vera vora inni- legustu ósk á þessari hátíð, að vér megum ævinlega vitna um frelsarann hér á jörðu, og síðar í öðru lífi í hans dýrðar- ríki. Hjálpa þú oss til þess, himneski lausnari, gróðursettu í oss hið nýja lífið, og lát oss kunngjöra öðrum trúuðum vinum og systrum. Guð með oss kom þú í hjarta míns herbergi að fæðast, hjarta míns svíðandi benjar annars ei græðast. Lif þú í mér, lifað svo fái ég í þér, lát mig, ó Kristur, þér klæðast. —AMEN.

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.