Sameiningin - 01.12.1957, Blaðsíða 10
8
Sameiningin
hjarta sínu, og tók það aftur fram á síðari stundum ævinnar,
skoðaði það og íhugaði til þess er henni skildust betur Guðs
ráðsályktanir með hana og son hennar, og mannkynið allt.
Gjör þú sem hún. Varpa eigi frá þér með sjálfbyrgingsskap
því sem þér kann að virðast torskilið í hinni helgu sögu.
Geym það heldur í hjarta þínu, veltu því fyrir þér og hug-
leiddu það. Ef þú hefur eitthvað heyrt í Guðs orði á þessari
hátíð, sem snortið hefur hjarta þitt gleðilega, þá gleym því
eigi aftur, heldur geym það sem dýrgrip og tak það fram
þér til gleði og huggunar þegar þér liggur á, þótt síðar verði.
Og ef þú hefur eitthvað heyrt í Guðs orði, sem sært hefur
hjarta þitt, þá hristu það ei af þér, heldur geym það og lát
það hafa áhrif á breytni þína. Þá mun Guðs orð verða lifandi
frækorn í hjarta þínu sem dafnar þar og ber himinblóm og
ávexti til eilífs lífs. Þá munum vér einnig verða þess um
komin að vitna um frelsarann og útbreiða hans ríki, svo
sem hirðarnir fóru og kunngjörðu öðrum það sem þeir höfðu
heyrt og séð. Menn geta vitnað um Krist með fleiru en
orðum, menn geta það einnig með breytninni- Eftirdæmið er
einhver hin öflugasta prédikun, bæði til ills og góðs. Þó að
vér getum eigi vitnað um frelsarann, eða útbreitt hans ríki
með andagift postulanna, þá er oss öllum gefið færi á því, í
hverri stöðu sem vér erum. Þó að þú getir það eigi í fjöl-
menni meðal margra, þá getur þú það á heimili þínu meðal
konu og barna og heimamanna. Látum það vera vora inni-
legustu ósk á þessari hátíð, að vér megum ævinlega vitna
um frelsarann hér á jörðu, og síðar í öðru lífi í hans dýrðar-
ríki. Hjálpa þú oss til þess, himneski lausnari, gróðursettu
í oss hið nýja lífið, og lát oss kunngjöra öðrum trúuðum
vinum og systrum.
Guð með oss kom þú í hjarta míns herbergi að fæðast,
hjarta míns svíðandi benjar annars ei græðast.
Lif þú í mér, lifað svo fái ég í þér,
lát mig, ó Kristur, þér klæðast. —AMEN.