Sameiningin

Årgang

Sameiningin - 01.04.1945, Side 6

Sameiningin - 01.04.1945, Side 6
70 kirkjum fóru að prédika meira en áður út af hinum sér- staka boðskap föstunnar. Þetta hefir vafalaust borið góða ávexti í hugum og hjörtum kirkjufólksins. Það ber því meira á föstuhaldi alstaðar en áður var. Dr. Charles Clayton Morrisson hinn mikilhæfi ritstjóri vikublaðsins Christian Century í Chicago, sem nú er talið eitt hið allra merkasta kristindóms-rit þessa lands, skrifaði fyrir nokkrum árum næsta eftirtektarverða föstu hugvekju á ritstjórnarsíðu blaðs síns. Þar sagði hann, meðal annars þetta: “Sársaukinn, sjálfsafneitunin, og fórnfærslan eru þau umhugsunar efni, sem eðlilegast er að tengja huga sinn við á föstunni. Vér erum þá að hugsa um gagnsemi og blessun píslanna og sjálfsfórnarinnar fyrir vort andlega líf og vorn innri þroska”. Hugvekju sína endar hann með þessum eftirminnilegu orðum: “Fastan er ekki sex daga útfararathöfn. En hún er tímabil alvarlegra hugleiðinga og nýrra góðra ákvarðana. Þá skal maður minnast með þakk- læti hinna góðu gjafa Guðs, og gleðjast útaf fegurð og krafti lífsins. Hún á að gefa okkur nýja dýrðar sjón á sigri lífsins yfir dauðanum”. Þetta er falleg og virðingarverð lýsing á þýðingu föstunnar fyrir kristinn mann. Þess væri naumast að vænta að maður úr þeirri deild kirkjunnar gengi í þessu efni lengra en hér er gjört. Mér finst þó frá voru sjónarmiði, að vér geta gengið lítið eitt lengra, en þar er gjört. Fastan á að vera oss tímabil alvarlegra hugleiðinga áreiðanlega, en líka ákveðinnar sjálfsprófunar. Hún á að vera tími vakningar, iðrunar og afturhvarfs. Fastan getur oft verið oss tími fagnaðar í Guði og djúprar tilbeiðslu og bænariðju við Guð. Oss er það hin dýpsta þörf að rannsaka það við og við hvort vér erum sjálf ánægð með afstöðu vora til Guðs, kirkju hans og málstaðar. Til slíkrar rannsökunar er fastan vel fallin. Ert þú ánægður með afstöðu. þína við Guð, bróðir eða systir? Ert þú viss um að þú sért að gefa guði það sem Guðs er- Ert þú ánægður með það hvernig þú ert að fara með þitt eigið líf? Finst þér að hugsanir þínar, hugsjónir og líf sé statt á sönnum sigurvegi? Slíkar hugsanir og athuganir finst mér að heyri föst- unni til. Og þær þurfa fram að fara fyrir augliti Guðs og í auðmýkt og bæn. Bænar samband við Guð þyrfti að vera oss andlegur matur og drykkur á föstunni, ekki síst. En nú vil eg víkja að því, bræður og systur, að þunga-

x

Sameiningin

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Sameiningin
https://timarit.is/publication/673

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.